Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1990, Blaðsíða 85
Ryðfríadeild
Ryðfríadeildin varð strax
mjög öflug. Þar er unnin öll al-
menn sérsmíði. Síðustu ár hef-
ur deildin framleitt hrognaskilj-
ur fyrir sjávarútveginn og hafa
þær verið mjög vinsælar. Fyrir
íslensku vigtarfyrirtækin hefur
Ofnasmiðjan framleitt vigtar-
kápur. Ofnasmiðja er eina fyrir-
tækið á íslandi sem framleiðir
vaska og vaskaborð og hefur
sú framleiðsla verið mjög stöð-
ug í mörg ár.
Hilludeild
Hilludeildin hefur verið starf-
andi í rúm 20 ár. Hjá deildinni
hafa smávöruhillukerfi verið í
stöðugri þróun. Seinni ár hefur
verið lögð áhersla á stór hillu-
kerfi, þungavöruhillukerfi.
Djúpstöflun á brettum í þessi
kerfi sparar mikið gólfrými. Nýt-
ingin er um 30% betri ef miðað
er við aðrar hefðbundnar að-
ferðir. Djúpstöflun hentar alis
staðar þar sem vöru er staflað í
stórum einingum og miklu
magni, t.d. í vöruskemmum og
frystiklefum frystihúsa.
Ofnadeild
í ofnadeildinni eru framleidd-
ar margar tegundir af ofnum.
Aðallega eru þó framleiddir þar
toppofnar og svissylofnar.
Ofnasmiðjan hefur alltaf lagt
mjög ríka áherslu á gæði í sinni
framleiðslu. Hvað varðar ofn-
ana þá er þykktin í stálinu 1,5
mm en 1,25 mm í innfluttum
ofnum og munar þetta allt að
helmingi lengri endingartíma.
Ný deild
Verslunar- og þjónustudeild-
in er yngsta deild fyrirtækisins.
Þar eru seldar innfluttar plast-
vörur, harðplastplötur, raka-
þolnir vinnu-og verkfærakass-
ar.
Pergo er einstakt gólfefni
sem deildin selur.
Sýningin
Á sjávarútvegssýningunni í
Laugardalshöllinni verður lögð
rík áhersla á að kynna þunga-
vöruhillukerfin.
Hrávörugeymslurnar og til-
búnu vörugeymslurnar í ís-
lenskum frystihúsum hafa
verið mjög gamaldags. Þar
hafa ekki verið þungavöruhillu-
kerfi sem gefa mun betri pláss-
nýtingu og aðgengilegri
geymslu á matvörunni.
Ofnasmiðjan verður í bás
D-101 sem er 26 fm. Þar er tek-
ið vel á móti gestum.
„Við mælum með Mörenót“
JfrnJkh., <$> NETANAUST <$> koJUJml
Skútuvógi 13,104 Reykjavík, sími 91-689030, Jón Eggertsson símar 985-23885 — 92-12775