Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1991, Side 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1991, Side 9
VRKIÐ EKKI HEILAGT Sjómannablaðið Víkingur hefur ekki fyrr birt viðtal við Þor- stein eftir að hann varð sjávar- útvegsráðherra. Þess vegna þótti við hæfi að hann gerði les- endum blaðsins svolitla grein fyrir ástæðum þess að hann er í þessu ráðuneyti; því er fyrst spurt um þær.„ Þegar þessi ríkisstjórn var mynduö og Ijóst var að sjávar- útvegsráðuneytiö kæmi í okkar hlut, hafði ég langmestan áhuga á að taka það að mér, bæði vegna tengsla við og kynna af þessari atvinnugrein og ekki síst vegna þess að í þessu ráðuneyti er verið að takast á við langsamlega stærstu verkefnin í íslensku þjóðfélagi, það er stærsta efna- hagsráðuneytið og loks er sjáv- arútvegurinn að takast á við mörg ný verkefni. Allt þetta heillaði mig, þess vegna var þetta mitt val.“ — Þú nefndir tengsl viö þessa atvinnugrein. Hver eru þau? „Ég komst fyrst í kynni við sjávarútveginn sem blaðamað- ur. í störfum mínum fyrir at- vinnurekendasamtökin komst ég í kynni við rekstur sjávar- útvegsfyrirtækjanna í landinu og það fer heldur ekki á milli mála að átta ára seta á þingi fyrir öflug sjávarútvegspláss kemur manni í nána snertingu við bæði sjómenn, útgerðar- menn og fiskverkendur." fhaldið opnara en Framsókn —Hvers vegna lagði Sjálf- stæðisflokkurinn jafnmikla áherslu og raun ber vitni á að fá sjávarútvegsráðuneytið í sinn hlut á landsfundinum? „Fyrst og fremst vegna þess að þetta er þýðingarmesta at- vinnumálaráðuneyti landsins." — Jón Baldvin sagði, með- an á Viðeyjarsamningunum stóð, að helsta ástæða þess að hann kaus samstarf við Sjálf- stæðisflokkinn fram yfir sína fyrri samstarfsflokka væri að sjávarútvegsstefnan væri svo niður njörvuð í höndum Fram- sóknarflokksins að þar yröi engu um þokað. Hvaða loforð fékk hann um breytingar á sjáv- arútvegsstefnunni í stjórnar- myndunarviðræðunum? „Ég hugsa að það sé alveg rétt mat að Sjálfstæðisflokkur- inn hafi verið opnari en Fram- sóknarflokkurinn í þessu efni, kannski fyrst og fremst vegna þess að við höfum ekki viljað einskorða umræðuna um sjáv- arútvegsmálin við stjórnun fisk- veiðanna sjálfra, við höfum vilj- að opna umræðuna meira fyrir mótun heildstæðrar stefnu i sjávarútvegsmálum sem miðar að því að byggja upp atvinnu- greinina í heild og styrkja úr- vinnslu sjávarafurða og tryggja stöðu á erlendum mörkuðum." Mörg járn í eldinum — Er að vænta breytinga á þeirri sjávarútvegsstefnu sem nú er? „Við erum með fjölmörg járn i eldinum. í fyrsta lagi var á grundvelli laganna um stjórn fiskveiða og samkomulags stjórnarflokkanna sett á fót sér- stök nefnd til þess að verkstýra endurskoðun laganna. Þau lög kveða á um það sjálf að endur- skoðun skuli fara fram fyrir ár- slok 1982 og þar skuli allir hugsanlegir þættir fiskveiði- stjórnar verða teknir til skoðun- ar og mats. Satt best að segja hefði slík vinna átt að fara fram fyrir lifandi löngu. Við endur- skoðunina verður haft mjög víðtækt samstarf við hags- munaaöila í sjávarútvegi og stjórnmálaflokkana á þingi. Þessi nefnd á líka að fjalla um setningu markmiða fyrir ís- lenskan sjávarútveg, móta heildstæða stefnu veiða og vinnslu og hvert við viljum stefna þróun íslensks sjávarút- vegs inn í nýja öld og inn í breytta viðskiptahætti með auknu samstarfi þjóða. í annan stað erum við að undirbúa breytingar á verð- myndun sjávarfangs sem hefur verið bundin í Verðlagsráði sjávarútvegsins í nokkra ára- tugi með skyldu til þess að ákveða hámarksverð á fiski. Nú ætlum við að koma fram grundvallarbreytingu þar sem frjáls fiskverðsmyndun verður megin regla. í þriðja lagi nefni ég aö við erum að undirbúa afgerandi breytingar á stjórnsýslu sjávar- útvegsins. Það hefur verið mjög umdeilt hversu mikil verk- efni hafa verið hér inni í ráðu- neytinu sjálfu. Ráðuneytið hef- ur verið að fjalla um mál sem leiða til úthlutunar á tilteknum réttindum, það hefur eftirlit með þessum réttindum, það hefur haft ákæruvald ef útaf er brugðið og það hefur haft dómsvaldið. Þetta stenst ekki eðlilega stjórnsýslu á slíkum málum og nú ætlum við að brjóta þetta upp og koma þess- um störfum á fleiri hendur, þannig að menn eigi auðveld- ara með að leita réttar síns ef þeir telja að á þá sé hallað.“ Á grundvelli bestu þekkingar Á liðnum mánuðum og fáum árum hefur nokkuð, og vax- andi, orðið vart við umræðu fiskimanna, sem hefur svo endurspeglast á síðum Vík- ingsins, þess efnis að grunnur- inn sem stjórn fiskveiða er byggð á sé ótraustur eða jafn- vel alrangur. Þar er einkum átt við uppeldisstefnu ungfisks sem felst í verndun hrygningar- stöðva og uppeldisstöðva, stækkun möskva í veiöarfær- Við höfum viljað opna umræðuna meira fyrir mótun heildstæðrar stefnu í sjávar- útvegsmálum. VÍKINGUR 9

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.