Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1991, Qupperneq 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1991, Qupperneq 18
SIFELLT LETTARA Með tveim samstarfs- mönnum um borð í Bessanum 18 VÍKINGUR „Ég ætlaði mér aldrei að verða sjómaður og var orðinn 19 ára gamall þegar ég hóf mína sjómennsku. Atvinnu- leysi var hér tímabundið og staðbundið og ég þénaði vel á sjónum. Ætli það hafi ekki verið aðalástæðan. Fyrstu vertíðina mína til sjós var ég á Ásúlfi með Haraldi Guðmundssyni, rót- grónum skipstjóra á ísafirði. Ég fór svo í Stýrimannaskólann strax og ég var búinn að ná siglingartímanum og kláraði hann á einum vetri, ólíkt því sem nú er þegar menn þurfa allt upp í þrjá vetur til að læra þaö sama. Ég réðst sem stýri- maður hjá Einari heitnum Jó- hannssyni á ísborgina og var þar hátt í tvö ár. Ég hætti þar 1959 og réðst þá sem skipstjóri á Ásúlf, þann sama og ég hóf mína sjómennsku á. Við vorum á línu eina vertíð og svo á síld. Eftir tvö ár á Ásúlfi tók ég svo við s.kipstjórn á Guðmundi Pét- urs frá Bolungarvík. Einar Guð- finnsson hf. gerði hann út. Mér líkaði stórvel að starfa með þeim. Þeir reyndust mér vel og ég átti þar mikiö og gott sam- starf við Guðfinn Einarsson. Frá þeirri útgerð lá svo leiðin til Frosta hf. í Súðavík þar sem ég tók við Kofra sem var nýsmíði frá Skipasmíðastöð Marselíus- ar Bernharðssonar. Síðan hef ég tekið við tveimur nýsmíðum fyrir sama fyrirtæki, gamla Bessa og þeim nýja á síðasta ári.“ Skipstjóri, útgerðarmaður og fiskverkandi Þau kaflaskipti urðu í sögu Frosta hf. fyrir nokkrum árum að nýir eigendur tóku við rekstri fyrirtækisins. Jóhann var einn þeirra manna sem keyptu fyrir- tækið. Hann er spurður um að- dragandann og ástæður kaup- anna. „Þegar sú staða kom upp hér í Súðavík að þessir gömlu eig- endur sem ég hafði starfað hjá misstu völdin þá skapaðist hér millibilsástand sem maður sá ekki fram úr. Þegar ég sá að það gátu gerst hlutir sem ég vildi ekki að hentu þetta fyrir- tæki og þetta þorp, þá bund- umst við fimm menn hérna í þorpinu félagsskap um það að reyna að halda meirihluta í þessu til þess að halda þessu hér á góðum stað. Við stofnuð- um þá hlutafélagið Tog hf. í þeim tilgangi að ná meirihluta í Frosta hf. sem er móðurfyrir- tæki hér og stjórnar öllu. Þeir sem standa að Togi auk mín eru Ingimar Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Frosta, Jónatan Ingi Ásgeirsson, skipstjóri á Haffara, Auðunn Karlsson, verkstjóri hjá Frosta, og Barði Ingibjartsson, stýrimaður á Bessa. Það er mín trú að ár- angur náist, ef eigendurnir starfa allir að fyrirtækinu, hver í sinni grein, og allir leggjast á eitt með heiöarleika og kappi. Þá eiga þeir að ná áfram. Hverjir eiga að ná árangri ef það eru ekki þeir sem starfa sjálfir að fyrirtækjunum hver á sínu sviði?“

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.