Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1991, Qupperneq 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1991, Qupperneq 20
SIFELLT LETTARA „Ég er skrattanum hjá- trúarfyllri en það er svo persónulegt að ég vil síður tíunda það.“ 20 VÍKINGUR Ég er skrattanum hjátrúarfyllri Margir úr sjómannastétt hafa þótt hjátrúarfullir og þekktar eru sögur af miklum aflamönnum sem hafa veriö fastheldnir á ákveöna siöi sem aö þeirra mati gátu haft áhrif á aflasæld þeirra. Gott dæmi um slíkt er þegar kunnur vestfirskur afla- maöur lét úr höfn meö lóöabelg hangandi á síðunni. Belgurinn haföi veriö notaður sem stuðpúöi og karlarnir höföu gleymt aö fjarlægja hann þegar haldiö var til veiöa. Þeir geröu afbragðstúr og undir lok veiöi- feröarinnar tók einhver eftir þessum aöskotahlut og ætlaði aö fjarlægja hann. Þá sagöi skipstjórinn stopp og belgurinn var óhreyfður á skipssíöunni næstu mánuði. Er Jói Sím. hjá- trúarfullur? „Ég er skrattanum hjátrúar- fyllri en það er svo persónulegt að ég vil síður tíunda þaö. Ég get þó nefnt sem dæmi að talan 13 hefur víöa tengst minni sjó- mennsku og ég er dálítið hjá- trúarfullur gagnvart henni. Ég var nemandi númer 13 í stofu númer 13 í Stýrimannaskólan- um. Ég lagði á hafið á Kofra 13. júní. Skipaskrárnúmerið á gamla Bessa var 1313. Og þegar viö létum smíöa þann nýja fengum við auðvitaö ekki gamla númeriö, en þá fengum viö 2013. Talan 13 hefur fylgt mér svo lengi aö ég hef ekki þessa ótrú á henni sem margir hafa.“ Ég hef hent smáfiski alit mitt líf Mikiö fjölmiölafár hefur veriö aö undanförnu þar sem talað hefur veriö um gegndarlaust drápásmáfiski. Reiknimeistar- ar úr stétt sjómanna hafa geng- ið fram með þær tölur aö hver togari kasti 1,3 tonnum af smá- fiski á dag. Eru þetta raunhæf- ar tölur? „Ef maður vill vera heiöarleg- ur í þessu tali þá verður aö segjast eins og er aö þetta er ósköp misjafnt. Ég hef hent smáfiski allt mitt líf í einhverjum mæli. Oftast er þetta örlítiö, þaö hirðir enginn kóö allt niður í 30 sentímetra. Fiskur á Vest- fjarðamiðum hefur alltaf verið blandaöur og þaö veröur aldrei komist hjá því aö eitthvað slæðist meö af smáfiski. Auð- vitaö veit maöur aö þaö hefur komiö fyrir aö skip hafa verið í smáfiski á vissum slóöum og þaö hafa komið tilmæli til þeirra um það aö fara af svæðinu. Flestir hlýða slíkum tilmælum en þó eru örfá skip sem ekki hafa gert það. Þorri togaraskip- stjóranna fer strax af slóðinni þegar þeir veröa varir viö mik- inn smáfisk í aflanum. Ég held að þessar yfirlýsingar um stór- fellt smáfiskadráp séu bara kjaftháttur í mönnum sem þurfa af einhverjum ástæöum aö láta Ijós sitt skína. Keyrði rakleitt til baka, bölvandi og ragnandi Þaö er talað um að sumir skipstjórar hafi einhverskonar sjötta skilningarvitiö sem gerir þeim kleift aö finna fisk öörum fremur. Jóhann vill ekki gera mikið úr sinni sérgáfu aö þessu leyti og segir alla skipstjórnar- menn þekkja þá tilfinningu aö una ekki á þeirri veiðislóö sem þeir eru staddir á. Hugurinn er einhversstaðar annarsstaðar án þess aö sjáanleg rök séu fyrir því að þar sé fiskur. Hann lætur þó undan og tekur dæmi af slíkri tilfinningu sem átti viö rök að styðjast. „Ég man sérstaklega eftir einu tilviki. Viö vorum búnir aö þaulkemba allt Halasvæöiö og kantinn þar fyrir austan í tvo daga án þess aö fá fisk. Þarna var um að ræöa nokkuð mörg skip og einhverjir gáfust upp og keyrðu austur á Strandagrunn. Þar varð strax vart viö fisk og ég var á endanum einn eftir og haföi á tilfinningunni aö þaö færi aö koma fiskur. En svo gafst ég upp líka og keyrði

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.