Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1991, Qupperneq 47

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1991, Qupperneq 47
Utan úr hcimi Nýjung í flutningum Og þaö eru fleiri nýjungar sem ættu að gleöja útgerðar- menn gámaskipa því nú hafa verið hannaðar grindur til að setja inn í 40’ gáma til að auka bílaflutningsgetu þeirra. í stað þess að geta einungis komiö tveimur fólksbifreiðum inn í gáma af þessari stærð er nú unnt aö koma fyrir fjórum bílum með þessum búnaði. Til að minnka umfang þessara nýju grinda þegar flytja þarf þær tómar eru þær brotnar saman og komast þá sex grindur hver ofan á aðra inn í 40’ gám. Sovésk kaupskipaútgerð Það er næstum orðið að tísku aö vorkenna Sovétmönn- um. Vandræði blasa við so- véskri kaupskipaútgerð og að sögn forseta sovéska útgerð- arsambandsins er aðal ástæðan lausafjármagnsskort- ur. Telur hann að ekki líði á löngu þar til lánardrottnarnir fari að krefjast kyrrsetningar sovóskra kaupskipa þar sem þau eigi orðið f vandræðum með að greiða reikninga sína. Það eina sem þeir eiga er fullt af gömlum skipum og annað eins af sjómönnum. Sumir telja að þetta sé nú einungis harma- gráturtil að rikisstjórnin þarfyrir austan gefi útgerðunum meira frelsi svo þeir geti unnið sór inn meiri dollara og ekki eru laun þarlendra sjómanna útgerðun- um ofraun. Því er svo við að bæta að efnahagsráðherra Þýskalands hefur nýlega látið hafa eftir sér aö sovótmenn muni standa við greiðslur, vegna smíði sextán skipa sem veriö er að smíða í þýskum skipasmíöastöðvum og af- hendast í ár, og kosta um 900 milljónir marka. Risaskipavandamál Stöðugar hörmungar dynja yfir stóru búlk- og oliuskipin. Nú nýlega féll stór hluti úr síðu á málmgrýtisskipi í Indlandshafi og er vart ár liðið síðan sams- konar atburður átti sér stað og fjallaö var um hér á þessum síðum. Og annað stórslys varð undan strönd Ástralíu í síðasta mánuði þegar bógur 98.000 tonna grísks oliuskips brotnaði af í óveðri og var titt nefnt í frétt- um fjölmiðla. Skipið, Kirki, sem er 21 árs gamalt var í leigu hjá BP og á leiö frá Persaflóa til Ástralíu þegar slysiö varð. Nú hafa menn það á orði að síðasti áratugur hafi verið áratugur hönnuða en það var viss kald- hæðni sem fólst í orðum trygg- ingamanns í London sem benti á að Örkin hans Nóa hefði verið hönnuð af amatörum en Titanic af sérfræðingum. Og hann bætti við að hann vonaðist til að sjá næsta áratug sem áratug heilbrigðrar skynsemi í skipa- hönnun. Þetta er of satt til að vera fyndið. Bílar lestaðir inn í 40' gám með nýju grindun- um. Kirki stefnislaust. VÍKINGUR 47

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.