Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1991, Síða 50

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1991, Síða 50
Þröstur Haraldsson blaðamaður 50 VÍKINGUR HORFUKNAR Sennilega standa nú yfir einhverjir mestu umbrotatímar sem íslenskur sjávarútvegur hefur gengið í gegnum um áratuga skeið. Breytingarnar sem orðið hafa á örfáum árum eru meiri en nokkur gat séð fyrir. Þær ná til flestra sviða sjávarútvegs en eru þó einna stórstígastar á sviði mark- aðsmálanna. Ekki eru nema örfá ár síðan langmestum hluta af þeim físki sem á land barst var landað í vinnslu innanlands og þaðan fór hann, sem flök, blokk, saltfiskur eða skreið, til útlanda í gegnum þrjú sölusamtök. Þá fór langmestur hluti freðfisksins til Bandaríkjanna. Nú er Bretland orðið langstærstur kaupandi á ís- lenskum fiski og verulegur hluti hans er fluttur út ísaður í gámum eða með fiskiskipum. Vinnslan innanlands hefur dregist saman og innlendu markaðirnir hafa vax- ið ört. Þeir spretta upp eins og gorkúlur, sums staðar jafnvel fleiri en einn á hverjum stað. Síð- ast en ekki síst hefur dágóður partur af vinnslunni flust út á sjó, enda sýna nýjustu tölur að meða- lfrystitogarinn skilar meira en tvöföldu aflaverðmæti á við ísfis- ktogarann - og gildir þá einu hvort landað er úr þeim síðarnefndu heima eða á mörkuðum erlendis. Frystihúsin keppast við að fram- lengja lífdaga sína en eiga erfitt uppdráttar. Þaðan heyrast fréttir um að verið sé að umbylta vinnslutækninni, ýmist í þá veru að taka upp sömu vinnslulínu og þróast hefur um borð í frystitog- urunum eða þá að pakka í neyt- endapakkningar fyrir erlendar verslunarkeðjur. Hefðbundin framleiðsla á flökum og blokkum á undir högg að sækja. Þá hafa rekstrarskilyrði grein- arinnar tekið verulegum breyt- ingum og þar sér ekki fyrir end- ann á þróuninni. Vinnslan stendur frammi fyrir því að þurfa áður en langt um líður að kaupa allt sitt hráefni á mörkuðum. Tónninn sem nú heyrist úr sjávarútvegs- ráðuneytinu er á þá lund að rétt- ast væri að selja allan fisk sem íslensk skip veiða á mörkuðum innanlands. Ef svo fer sem horfir að Island bindi trúss sitt fastar en nú er við Evrópubandalagið má gera ráð fyrir því að ekki líði á löngu þangað til erlend fisk- vinnslufyrirtæki fari að bjóða í fisk á íslenskum mörkuðum. Þá þurfa frystihúsin aldeilis að taka sér tak eigi þau að gera sér vonir um að standast samkeppnina. Þá þarf meira að koma til en pilsfald- ur ríkisins. Þá þýðir ekkert fyrir frystihús smáþorpanna að ætla sér að hokra ein, þau munu neyð- ast til að taka upp samstarf og jafnvel sameinast fyrirtækjum í nærliggjandi byggðarlögum. Og ekki kæmi það mér á óvart þótt kvótaleiga eða veiðigjald í einhverju formi líti dagsins ljós strax á næsta ári. Núverandi staða er óbærileg. Þjóðin á kvót- ann, stendur í lögunum, en ekki útgerðirnar. Samt gengur kvót- inn kaupum og sölum milli út- gerða án þess þjóðin sé spurð. En það má ekki bókfæra kvótann sem eign og þar af leiðandi er kvótaúthlutun ekki skattskyld. Þetta dæmi gengur einfaldlega Sfldveiðar eru komnar í fullan gang og það óvenjulega gerðist á fyrstu dögum vertíðarinnar að beita þurfti skyndilokun til þess að koma í veg fyrir veiðar á of smárri sfld í Homafjarðardjúpi. Þegar við náðum tali af Sveini ísa- kssyni skipstjóra á Háberginu þar sem hann var á leiðinni til heima- hafnar í Grindavík með fullfermi ekki upp til lengdar. Það hlýtur að enda með því að einhvers konar veiðigjald verði tekið upp. Enda halda margir því fram að slík gjaldtaka sé eina leiðin til þess að jafna út sveiflurnar sem verða í íslenskum sjávarútvegi, hún sé bæði virkara og réttlátara tæki en gengisfellingarnar og sjóðaleiðin sem við þekkjum svo vel. Aflasamdrátturinn sem nú hef- ur staðið í fjögur ár og sér enn ekki fyrir endann á flýtir þróun- inni, á því er enginn vafi. Minnk- andi afli kallar á aukna hagræð- ingu í veiðum, vinnslu og sölu, nema við séum reiðubúin að sam- þykkja afturför í lífsgæðum. Og það erum við ekki. í þeirri orra- hríð sem nú er framundan þarf að gæta að öllum mögulegum hags- munum -byggðaþróun, atvinnu- stigi, launaþróun osfrv. Þarmega menn ekki sitja að sínu eins og hundur á roði og neita að horfast í augu við breyttan veruleika. Það verður að kveða niður allan hrepparíg og aðra skammsýni sem við virðumst alltaf eiga svo mikið af þegar að okkur kreppir. Annars getum við bara gefist upp og sótt um að verða hreppur í Þýskalandi. af sfld var ekki á honum að heyra að hann þyrfti að hafa áhyggjur af smásfld.,, Við erum með 500 tonn af sannkallaðri demantssfld sem við fengum djúpt í Homafjarðardjúp- inu. Blandaða sfldin var efst í djúpinu og næst landi en utar var þessi fína sfld og eins hefur hún fundist á Breiðdalsgrunni og í Stóra síldin er fundin — segir Sveinn Isaksson skipstjóri á Háberginu frá Grindavík

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.