Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1995, Page 72
framhatd afbls. 69
vægu hlutverki við ákvörðun á fiskverði í þeim tilvikum
sem útgerðir og áhafnir einstakra skipa koma sér ekki saman
um fiskverð. Fiskverðið er sem kunnugt er veigamesti þátt-
urinn í launakjörum sjómanna á fiskiskipum, enda nefndin sett
HRÖNN HF.
ÍSAFIRÐI
sendir sjómönnum og fisk-
vinnslufólki bestu jóla og
áramótakveðjur.
á fót í kjölfar síðustu kjarasamninga, meðal annars til að koma
í veg fyrir þátttöku sjómanna í kaupum á veiðiheimildum.
Núverandi fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar vegna ársins
1996 virðist stefna þessari upplýsingaöflun Fiskifélags Islands í
voða og um leið kippa grundvellinum undan starfi úrskurð-
arnefndarinnar. Það er mjög mikilvægt að öflun upplýsinga
sé tryggð til lengri tíma og hún sé framkvæmd af aðila sem
telst vera ábyggilegur og utan deilna um Iaunakjör í sjá-
varútvegi. Því skorar formannafundur Sjómannasambands
Islands á ráðherra að tryggja framangreinda upplýsin-
gaöflun með því að gera samning við Fiskifélag íslands til
lengri tíma um áframhaldandi öflun þessara upplýsinga.
ÁSKORUN TIL SJÓMANNA
Formannafundur Sjómannasambands Islands, haldinn á
Akureyri 24. og 25. nóvember 1995, skorar á sjómenn að
notfæra sér ákvæði kjarasamninga og laga um úrskurð-
arnefnd sjómanna og útvegsmanna séu þeir ósáttir við
verðlagningu á sjávarfangi sínu.
Vitað er að áhöfnum er hótað á ýmsa vegu sætti þær sig
ekki við léleg tilboð um fiskverð frá útgerð sinni. Urskurð-
arnefnd sjómanna og útvegsmanna var sett á fót í þeim til-
gangi að leysa úr ágreiningsmálum um fiskverð milli áhaf-
nar og útgerðar. Látið því ekki hótanir hræða ykkur frá því
að nýta ykkur þennan samningsbundna og lögvarða rétt.
Sjómenn, það er ykkar að uppræta þátttöku í kaupum á
veiðiheimildum með því að nýta þau ákvæði
kjarasamninga og laga sem taka eiga á málinu.
UM GAGNKVÆMAR VEIÐIHEIMILDIR
Formannafundur Sjómannasambands íslands, haldinn á
Akureyri 24. og 25. nóvember 1995, mótmælir þeim
hugmyndum sem fram eru komnar um gagnkvæmar veiði-
heimildir í tengslum við hugsanlegan samning við
Norðmenn og Rússa um veiðar íslendinga í
Barentshafi. Framhald á bls. 76
72