Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1998, Page 39
feðingardags og árs og dánardags og árs sem
°g heiti á skipi sem viðkomandi hefur farist af
°g stöðu hans um borð. Minnisvarðinn var
vígður á sjómannadaginn 2. júní 1996. Frá
fyrsta sjómannadeginum 1938 til þess dags
að minnisvarðinn var vígður höfðu 1.353
sjómenn farist og um 400 þeirra ekki fundist.
„Við vígsluna kom Guðmundur Hall-
varðsson til mín og bauð mér að halda á
kransinum með sér. Mér fannst þetta óskap-
lega mikill heiður. Allt frá því að Drangajök-
ull fórst átti ég þá ósk að fá að skíra skip. Þetta
kom fullkomlega í staðinn fyrir það. Mér
finnst þessi minnisvarði eins og barnið mitt.
Fer þangað helst vikulega og snyrti í kringum
hann eins og þarf,“ segir Halldóra Gunnars-
dóttir.
Vantar alltof mörg nöfn
Þegar minnisvarðinn var vígður voru þar
komin upp nöfn Hermóðsmanna auk
tveggja annarra nafna að sögn Halldóru. Nú
eru nokkrir tugir nafna komin á öldurnar.
Halldóra vill að nú verði gerð gangskör að því
að skrá nöfn sem flestra er týnst hafa á sæ.
„Mér finnst dapurlegt hvað það gengur
seint að koma nöfnum upp á öldurnar. f>að
kostar 25 þúsund krónur að setja hvert nafn.
Helmingur þeirrar upphæðar er kostnaður
Steinsmiðjunnar við að gera nafnið og aðrar
upplýsingar en hinn helmingurinn rennur til
Sjómannadagsráðs upp í stofnkostnaðinn.
Mér finnst að nú á ári hafsins ætti að gera
stórátak í að fjölga nöfnunum. Stóru skipafé-
fögin, sjómannafélög, fyrirtæki og ríkissjóður
*ttu að sameinast um þetta verkefni. f húsi
Eimskips eru tvær minningartöflur með
nöfnum þeirra sem fórust með Goðafossi og
Dettifossi á stríðsárunum. Það voru Vestur-
fslendingar sem gáfu Eimskip þessar töflur.
l’egar forfeður þeirra voru að flytja vestur og
einhver vesturfari dó um borð í skipunum var
líkinu sökkt í sæ. Eftirlifendum þótti sárt að
skilja ástvini sína eftir í votri gröf og skildu
þýðingu þess að skrá nöfn þeirra með varan-
legum hætti. Það á að sýna minningu týndra
sjómanna þá sjálfsögðu virðingu að skrá nöfn
þeirra allra á öldurnar. Þeir eiga það skilið af
þjóðinni því þetta eru hetjur okkar allra. En
umfram allt skulum við minnast þess að það
þarf að ríkja friður og ró kringum minnis-
varðann. Það er von mín að fólk gangi þarna
hljóðlega hjá með þakklæti í huga til þeirra
sem verið er að minnast,” sagði Halldóra
Gunnarsdóttir. ■
Útvegssvið VMA á Dalvík
Framhaldsnám
Námsbrautir í boði skólaárið 1998 - 1999
Almenn braut: 2 ár
Sjávarútvegsbraut: 2 ár
(Undirbúningsbraut fyrir skipstjóranám)
Skipstjórnarbraut:
I. stig 1. ár
II. stig 2. ár
Fiskvinnslubraut: 2 ár
Fiskvinnslubraut telur 4 annir og hefja nernendur nám að
loknu 1. áriþ.e. 36 einingum í framhaldskóla. Einnigskidu
nemendur hafa lokið a.m.k. 8 vikna starfsþjálfiin hjá
viðurkenndum fiskvinnslufyrirtíekjum. Nemendur sem inn-
ritast á seinni hluta námsins skulu hafa lokið jyn'i hlutanum
með viðunandi árangri. Kennt er á Dalvik.
Upplýsingar á skrifstofu skólans.
Síma: 466-1083 Fax: 466-3289
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 8:00 - 12:00
SjÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
39