Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1998, Side 52

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1998, Side 52
Þröstur Sigtryggsson fyrrverandi skipherra: _j Þurfum ekki Þröstur Sigtryggsson fyrrverandi skipherra hjá Landhelgisgæslunni býr nú í Vestmanna- eyjum ásamt konu sinni Guðrúnu Pálsdóttur sem er Vestmannaeyingur. Þröstur hætti störfum hjá Gæslunni hausdð 1990 og segist ekkert kunna því illa að vera hættur. Hann eigi næg hugðarefni. Þröstur hefur til að mynda mikinn áhuga á tónlist og spilar á orgel, þótt hann láti lítið yfir þeirri kunnáttu. Hann hefur einnig ákveðnar skoðanir á væntanlegu nýju varðskipi. Hann telur það allt of stórt miðað við þarfir og fyrirsjáanleg verkefni og þar af leiðandi óþarflega dýrt bæði í smíðum og rekstri. Þröstur segir að það sé ólíku saman að jafna þegar bera á saman skip Gæslunnar núna eða þegar hann var að byrja árið 1948. ,Ægir og Týr eru sjóborgir miðað við þau skip sem við vorum á þá. Gamli Ægir og Sæ- björg voru til dæmis hinar mestu veltikollur og búnaður til að draga skip var ákflega léleg- ur og það átti líka við um Óðinn og Albert. María Júlía var miklu þægilegri til dráttar af því hún var með togspil vegna fiskirann- sókna. Þessi skip urðu svo smám saman alltof lítil og aflvana eftir því sem fiskiskipin stækk- uðu. Það á ekki við um systurskipin Tý og Ægi með sín 8600 hestöfl. Þau eru 70 metr- ar að lengd og voru um 1000 tonn brúttó fyrir lokun affurþilfars og nægilega öflug til að draga hvaða íslenskt skip sem er í hvaða veðri sem er. En sjórnhæfni þeirra verður að bæta.” Þröstur segir að það skip sem nú sé fyrir- hugað að smíða sé þrisvar sinnum stærra en Týr og Ægir eða 3000 brúttótonn og allt að 120 metra langt. „Það hafa ekki komið fram nein rök er skýra eða réttlæta smíði skips af þessari stærð. Eina skýringin, sem ég hef séð frá dómsmálaráðherra var í Morgunblaðinu 19. mars 1997, þar sem hann segir, „að að- stæður við björgunar- og gæslustörf hafi breyst svo mikið að það sé orðin knýjandi þörf á því að fá hingað öflug skip.” Þetta tel ég dálítið Ioðna skýringu. Ég kem ekki auga á Það á ekki við um systurskipin Tý og Ægi með sín 8600 hestöfl. Þau eru 70 metrar að lengd og voru um 1000 tonn brúttó fyrir lokun afturþil- fars og nægilega öflug til að draga hvaða íslenskt skip sem er í hvaða veðri sem er. En sjórnhæfni þeirra verður að bæta. 52 Sjómannablaðið VIkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.