Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1998, Page 52
Þröstur Sigtryggsson fyrrverandi skipherra:
_j Þurfum ekki
Þröstur Sigtryggsson fyrrverandi skipherra
hjá Landhelgisgæslunni býr nú í Vestmanna-
eyjum ásamt konu sinni Guðrúnu Pálsdóttur
sem er Vestmannaeyingur. Þröstur hætti
störfum hjá Gæslunni hausdð 1990 og segist
ekkert kunna því illa að vera hættur. Hann
eigi næg hugðarefni. Þröstur hefur til að
mynda mikinn áhuga á tónlist og spilar á
orgel, þótt hann láti lítið yfir þeirri kunnáttu.
Hann hefur einnig ákveðnar skoðanir á
væntanlegu nýju varðskipi. Hann telur það
allt of stórt miðað við þarfir og fyrirsjáanleg
verkefni og þar af leiðandi óþarflega dýrt
bæði í smíðum og rekstri.
Þröstur segir að það sé ólíku saman að
jafna þegar bera á saman skip Gæslunnar
núna eða þegar hann var að byrja árið 1948.
,Ægir og Týr eru sjóborgir miðað við þau
skip sem við vorum á þá. Gamli Ægir og Sæ-
björg voru til dæmis hinar mestu veltikollur
og búnaður til að draga skip var ákflega léleg-
ur og það átti líka við um Óðinn og Albert.
María Júlía var miklu þægilegri til dráttar af
því hún var með togspil vegna fiskirann-
sókna. Þessi skip urðu svo smám saman alltof
lítil og aflvana eftir því sem fiskiskipin stækk-
uðu. Það á ekki við um systurskipin Tý og
Ægi með sín 8600 hestöfl. Þau eru 70 metr-
ar að lengd og voru um 1000 tonn brúttó
fyrir lokun affurþilfars og nægilega öflug til
að draga hvaða íslenskt skip sem er í hvaða
veðri sem er. En sjórnhæfni þeirra verður að
bæta.”
Þröstur segir að það skip sem nú sé fyrir-
hugað að smíða sé þrisvar sinnum stærra en
Týr og Ægir eða 3000 brúttótonn og allt að
120 metra langt. „Það hafa ekki komið fram
nein rök er skýra eða réttlæta smíði skips af
þessari stærð. Eina skýringin, sem ég hef séð
frá dómsmálaráðherra var í Morgunblaðinu
19. mars 1997, þar sem hann segir, „að að-
stæður við björgunar- og gæslustörf hafi
breyst svo mikið að það sé orðin knýjandi
þörf á því að fá hingað öflug skip.” Þetta tel
ég dálítið Ioðna skýringu. Ég kem ekki auga á
Það á ekki við um systurskipin Tý og Ægi með sín 8600 hestöfl. Þau eru 70 metrar að lengd og voru um 1000 tonn brúttó fyrir lokun afturþil-
fars og nægilega öflug til að draga hvaða íslenskt skip sem er í hvaða veðri sem er. En sjórnhæfni þeirra verður að bæta.
52
Sjómannablaðið VIkingur