Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2000, Blaðsíða 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2000, Blaðsíða 9
B. Kristjánssonar, en Guðmundur var kennari við Stýrimannaskólann í yfir 40 ár. Öldubikarinn og verðlaun LIÚ fyrir hæstu einkunn á fiski- mannaprófi voru ekki veitt í þetta skipti. En skipstjórnarstig 2. stigs var ekki haldið við skólann, þrátt fyrir að fleiri hundruð bréf hafi verið send út vorið 1999 til nemenda með skipstjórnarpróf 1. stigs og þeim boðið nám í 2. stigi eftir eldra námsskipulagi. Viðurkenningarskjal og bókaverðlaun fengu Magnús Örn Einarsson og Helgi Aage Torfason, sem lauk skipstjórnarprófi 1. stigs eftir nýrri námsskipan. Verðlaun í tungumálunum, íslensku, ensku og dönsku, fengu Stefán Pétursson og Heiðar Páll Halldórsson, nemendur á 3. stigi. Danska menntamálaráðuneytið sendir ávallt skólanum bókaverðlaun í dönsku. Við skólaslitin voru mættir fjölmargir fulltrúar afmælisárganga. Elsti prófsveinninn sem mætti var Matthías Jochumsson, sem er fæddur 1905 og útskrifaðist árið 1930, en það skólaár lauk 21 nemandi prófi. Fyrir hönd 50 ára prófsveina, sem fjölmenntu, talaði Sigurður Óskarsson skipstjóri og kennari við Fiskvinnsluskólann. Færðu þeir skólabræður skólanum peningaupphæð í Kompássjóð Stýriman- naskólans. Sjóðurinn var stofnaður árið 1996 og er ætlað að reisa táknrænan kompás á lóð skólans þegar hún verður lagfærð. Fyrir 30 ára fiskimenn talaði Bjarni Bergmann Sveinsson skipstjóri á Akranesi. Þeir skólabræður gáfu einnig upphæð í Kompássjóðinn. Margir í endurmenntun Á skólaárinu voru haldin fjölmörg námskeið fyrir starfandi skip- stjórnarmenn. í nýja fjarskiptakerfinu -GMDSS- voru haldin 11 námskeið og luku þeim 109, en 22. maí hófst síðasta fjarskip- tanámskeiðið á skólaárinu og eru þátttakendur 20. Tvö námskeið voru haldin I meðferð á hættulegum varningi og luku 14 því námi. í samvinnu við Slysvarnarskóla sjómanna og Slysadeild Þrír af 1. stigs skipstjórnarnemum ásamt skóiameistara. Frá vinstri: Jón Kr. Valdimarsson, Jóhannes Haraldsson, Helgi Aage Torfason og Guðjón Ármann Eyjólfsson skólameistari. Landspítalans í Fossvogi voru haldin fjögur námskeið í slysa- og skyndihjálp og meðferð lyfjakistu og luku því 42. Tvö námskeið voru haldin í ratsjársiglingum, ARPA og luku þeim fimm. Samtals komu því á endurmenntunarnámskeið 170, en auk þess voru haldin tvö átta vikna kvöldnámskeið fyrir 30 rúmlesta réttindi, 168 kennslus- tundir og luku því námi 28. Að venju sá Kvenfélagið Aldan um kaffiveitingar að loknum skólaslitunum með miklum myndarbrag. ■ Sjómannablaðið Víkingur - 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.