Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2000, Qupperneq 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2000, Qupperneq 12
Nýsmíði fiskiskipa Fjöldi skipa í smíðum í Kína og Chile Mörg fiskiskip eru nú í smíðum fyrir íslenskar útgerðir í Kína og nokkur í Chile. Hér er fyrst og fremst um nótaskip að ræða með fjölhæfum möguleikum, en einnig eru að minns- ta kosti tveir ísfisktogarar í smíðum í Kína. Annar er fyrir Guðmund Runólfsson en hinn fyrir Gullberg á Seyðisfirði. Þetta eru fyrstu ísfisktog- ararnir sem smíðaðir eru fyrir íslendinga í mörg ár. Þeir verða af sambærilegri stærð og Málmey, aðeins styttri og heldur breiðari. Helgi Kristjánsson hjá Skipatækni, sem hannaði togarana, segir að gengið hafi verið frá samningum um smíðina fyrir skömmu. Kínverjum sé mikið í mun að uppfylla allar kröfur sem set- tar eru um allt er viðkemur smíðinni og vanda til verka. Á vegum Skipatækni er í Kína Stýrimannaskólinn Kostaboð um kaup á sjón- siglingakerfi Stýrimannaskólinn í Reykjavík hefur fengið mjög hagstætt tilboð um kaup á svokölluðu sjónsiglingakerfi. Skólinn þarf að fá um níu milljón króna fjárveitingu til að unnt verði að kaupa þetta kerfi og er vonast til að fjárlaganefnd sjái til þess að af kaupunum geti orðið. Þetta kom fram í samtali blaðsins við Guðjón Ármann Eyjólfsson skólameistara Stýrimannaskólans. Hann sagði að tilboðið hefði borist frá þeim aðila sem seldi skólanum siglin- gasamlíkinn, fiskveiðisamlíkinn og Vélskólanum vélaherminn. „Ég fékk mjög hagstætt tilboð um sjónsiglingakerfi, meira en helmingi lægra en áður og kort umhverfis allt ísland fylgir í kaupbæti. í stuttu máli vinnur þetta kerfi vinnur þannig, að þegar verið er að sigla í siglingasamlíki þá má sjá land, vita, baujur og skip framundan og þetta venur menn á það að líta út um glugg- ann. Við höfum fyrst og fremst æft ratjsársiglingar en þetta yrði skref framávið," sagði Guðjón Ármann Eyjólfsson skólameistari. Því verður ekki að trúað að óreyndu að fjárveitingavaldið komi ekki til móts við Stýrimannaskólann í þessu efni og geri honum mögulegt að festa kaup á þessum búnaði. ■ Útlitsmynd af ísfisktogurunum sem eru í smíðum í Kína. verið að Ijúka við smíði á skipi fyrir nót og flottroll sem Örn Erlingsson skipstjóri og útgerðarmaður í Keflavík er eigandi að. Skip af svipaðri gerð er í smíðum í Chile fyrir Huginn í Vestmannaeyjum og dæmigerður vertíðarbátur er í smíðum í Chile fyrir Happa í Keflavík. Þá eru einnig skip í smíðum fyrir ýmsa aðila á vegum Skipasýnar, Fengs og Ráðgarðs Skiparáðgjöf. Þar af er eitt olíuskip fyrir Olíudreifingu. ■ Mikil hækkun olíuverðs hefur haft mikil áhrif á launakjör sjó- manna. Grétar Mar Jónsson forseti FFSÍ segir, að vegna þessara hækkana fari nú 30% aflaverðmætis framhjá skiptum. Fyrir einu ári hafi þetta verið 20%. Ennfremur segir Grétar Mar, að á síðasta ári hafi olíukostnaður flotans hækkað um tvo og hálfan milljarð króna. Af þeirri upphæð hafi sjómenn borgað 1.600 milljónir og því sé afkoma þeirra verulega tengd olíuverði Þá telur hann að útgerðir sem afla vel en reka skip sem eyða lítilli olíu hafi hagnast á hækkandi olíuverði vegna þátttöku sjó- manna í að borga niður olíuverðið. ■ 12 - Sjómarmablaðið Víkingur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.