Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2000, Blaðsíða 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2000, Blaðsíða 14
Magnús Orn og kona hans, Elín Osk Þórisdóttir, fóru saman í útskriftarferð stýrimannsins síðast liðið vor. Hér eru þau stödd í New York þar sem allt er í stærra lagi, líka kókglösin. Magnús Örn Einarsson frá Eyrarbakka lauk skipstjórnarprófi 3. stig frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík síðast iiðið vor með hæstu einkunn þeirra sem útskrifuðust. Hann hlaut Farmannabikarinn sem og glæsileg verðlaun fyrir hæstu einkunn í siglingafræði í gegnum öll námsstig skólans. Einnig fékk hann viðurkenningarskjal og bókaverðlaun. Magnús Örn er nú stýrimaður á varðskipinu Ægi og Sjómannablaðið Víkingur gerði honum stutta heimsókn á vaktina þegar Ægir var í höfn ekki alls fyrir löngu. „Ég vissi svo sem ekki hvernig mér myndi ganga þegar ég byrjaði í Stýrimannaskólanum. Það var orðið langt síðan að ég hafði verið í skóla, fór aðeins í menntaskóla á sínum tíma en hafði ekki sérstakan áhuga á námi þá. En þetta gekk vel frá byrjun. Raunar ætlaði ég í upphafi að láta nægja að taka 1. stigið, en auðvitað er maður heftur með því að taka bara það. Námið gekk hins vegar mjög vel svo ég hélt áfram og var efstur í gegnum öll sti- gin. Eftir að ég lauk 2. stigi fór ég að leysa af hjá Gæslunni í fyrra- sumar og leist vel á það og tók 3. stigið líka," segir Magnús þegar hann er spurður um hinn góða árangur í Stýrimannskólanum. -Hvernig fannst þér skólinn, hvað viðkemur kennslu, tækjum og öðru slíku? „Skólahúsnæðið sjálft er búið að vera í niðurníðslu áratugum saman en nú er unnið við að skipta um þakið sem var orðið hriplekt. Ef það gerði góða dembu flaut um alla ganga. Námsefnið er gott að mörgu leyti en það er alltof lítið af tölvukennslu. Þeir sem hafa ekkert grunnnám á tölvur fá ekkert út úr þeirri kennslu, alla vega eins og þetta var þegar ég var í skólanum. Þetta er miður því nú byggist allt á tölvum og þekkingu á þeim. En skólinn er að ganga í gegnum breytingar og verið að lengja námið. Það verður til þess að erfitt verður að fá menn sem eru úti á sjó í skóiann. Fjölskyldumenn sjá ekki fram á að þeir hafi efni á að sitja svona lengi á skólabekk, enda eru þetta mest krakkar sem hafa lítið verið á sjó sem koma inn í skóiann. Það hlýtur að verða að koma á fjarkennslu fyrir sjó- menn sem vilja mennta sig frekar." -Hvenær byrjaðir þú á sjónum? „Mig minnir að ég hafi fyrst farið á sjóinn 1988 á drag- nótabát frá Þorlákshöfn, þá orðinn 23 ára. Ég var búinn að bíða eftir þessu plássi og síðan var allt í einu hringt og mér sagt að mæta. Mér fannst vera kolvitlaust veður og haugasjór, i 14 - Sjómannablaðið Víkingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.