Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2000, Blaðsíða 34
Elsti kvennskipstjóri heims
Rússneski skipstjórinn Anna Ivanovna Schetinina er líklegast
fyrsti kvennskipstjóri tuttugustu aldarinnar. Hún fæddist árið 1908
og hóf sinn sjómennskuferil 1930. Hún varð fljótt skipstjóri eða
1935 og var þá í siglingum milli Rússlands, Bandaríkjanna og
Kanada. Seinna varð hún yfirkennari og skólastjóri Stýrimanna-
skólans í St. Petersburg og Vladivostok. Hún hefur einnig skrifað
fjölda bóka um sigiingafræði og sjómennsku. Á 90 ára afmæli
hennar fyrir tveimur árum fékk hún kveðjur frá aðalritara IMO Willi-
am A. O’Neill þar sem hann sagði að í fáum stéttum væru karl-
menn eins mikið ráðandi og sjómannastéttinni en Anna Ivanovna
hefði sannað að konur gætu náð langt í þessari stétt. Hún hefði
verið starfandi í yfir 50 ár sem skiþstjóri og væri þvf góð fyrirmynd
Fyrsti kvennskipstjóri A.P. Maller, Michele de Linde Gladwin annarra kvenna sem hygðust leggja sjómennskuna fyrir sig.
hugbúnaðarfyrirtækisins Oracle og er hún önnur tveggja sem hann
á. Ganghraði snekkjunnar sem er 72 metra löng eða álíka og skip
Samherja, Akureyrin, eru litlar 30 mílur. Hún er notuð sem fylgdar-
skip fyrir keppnisskútu Larrys, Sayonara, en auk þess að vera þúin
fullkomnum tölvubúnaði þá hefur verið komið fyrir körfuboltavelli um
borð.
35 Sokar
Síðasta snekkjan sem ég mun fjalla um er í eigu Mohammed al-
Fayed eiganda Harrods í London. Þar eyddu Dodi og Díana
prinsessa síðustu viku sinni áður er þau létust í bílslysinu. Þar um
borð mun vera stór minningarskjöldur um þau. Hún er jafn löng og
skuttogarinn Pétur Jónsson eða um 64 metrar.
Eftir að hafa lesið sér til um snekkjur þá virðist vera álitlegur
markaður fyrir slík skip og því ættu útgerðarmenn skuttogara að
hugleiða hvort ekki sé ráð að snúa sér að nýjum markaði og breyta
skipum sínum í glæsilegar snekkjur fyrir milljónera heimsins sem
ekki vita aura sinna tal.
Danskur kvenskipstjóri
Það er því við hæfi að segja frá fyrsta kvenskipstjóra hjá risanum
A.P. Moller. Það var hin 35 ára danska Michele de Linde Gladwin
frá Grená sem varð fyrst kvenna til að hljóta skipstjórastarf hjá út-
gerðinni en hún tók við skipstjórn á gámaskipinu Charlotte Mærsk
fyrr á þessu ári. Hjá skipafélaginu, sem er það stærsta í heimi,
starfa 39 konur sem skipstjórnarmenn. Michele er sjómennskan í
Gamlir skipsfélagar
Nú hefur verið opnuð heimasíða sem er ætluð til þess að leita
uppi skipsfélaga. Slóðin er www.shipmatesworld.com en þar geta
menn skráð sig og ef einhverjir eru að leita að ykkur þá er þetra að
vera búinn að skrá sig þarna. Einnig er stefnt að því að á þessum
síðum verði hægt að leita að störfum til sjós.
Hér getur að líta skemmtisnekkju sem er ekki ólík skuttogara
í útliti og því ekki fjarri lagi að breyta skuttogurum í snekkjur
fyrir millana.
blóð borin því faðir hennar er skipstjóri hjá sömu útgerð en er um
það bil að fara á eftirlaun. Kærasti hennar til 13 ára, Peter Morten-
sen, var fyrr á þessu ári hækkaður í stöðu yfirvélastjóra hjá A.P.
Moller þar sem hann stjórnar vélarúmi með átta vélstjórum. Parið
hefur í gegnum árin siglt saman á fjölda skipa og
vonast til að svo verði einnig í framtíðinni þvi þá
verði auðveldara að skipuleggja fríin saman. Það
er því Ijóst hver stjórnar á þessu heimili.
Fimm ára prísund
Yfirstýrimaður af farþegaferjunni Iris Moana var
nýlega látinn laus eftir að hafa verið fangi Tamíla í
fimm ár. SkæruliðarTamíla rændu ferjunni undan
norðurströnd Sri Lanka en sjö manna áhöfn var á
henni. Ekki fer sögum um fjölda farþega en þeim
var sleppt skömmu eftir ránið ásamt þremur skip-
verjum en skipstjóranum, ásamt öðrum skipverja,
var sleppt þremur mánuðum síðar. Enn eru tveir
skipverjar i haldi skæruliðanna og vinnur Rauði
Krossinn að því að fá þá lausa.
Skoðun og viðgerðir
Einnig skoðun og viðgerð bjargbúninga
Gúmmíbátaþjónustan
Eyjasióð 9, Örfirisey sími 551: 4010 Fax: 562 4010
Risa gámaskip
Áður hefur verið sagt frá áætlunum um bygg-
ingu stórra gámaskiþa en Lloyd’s register hefur
kynnt nýja kynslóð gámaskipa sem menn kalla
Ultra Large Container Ship (ULCS). Herlegheitir ►
34 - Sjómannablaðið Víkingur