Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2000, Blaðsíða 50

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2000, Blaðsíða 50
 Maðurinn var búinn að liggja milli heims og helju mánuðum saman og eiginkonan hafði setið við rúmstokkinn alla daga. Einn daginn virtist brá aðeins af honum. Hann opnaði augun og benti henni að koma nær. Sagði svo með augun full af tárum: -Veistu hvað. Þú hefur verið hjá mér gegn- um alla erfiðleika. Þegar ég var rekinn úr vinnunni varst þú til staðar að styðja mig. Þegar fyrirtæki mitt fór á hausinn varst þú til staðar. Þegar ég varð fyrir byssuskoti varst þú við hlið mér. Þegar við misstum húsið varstu áfram kyrr hjá mér. Þegar heilsan bilaði stóðst þú enn við hlið mér. Veistu hvað ég er að hugsa? -Hvað ertu að hugsa elskan?, spurði hún og fann hlýja strauma fara um sig. -Ég held að þú sért óheillakráka. Hópur kvenna var að spila golf á sólrík- um iaugardagsmorgni. Eftir teighögg frá einni þeirra sjá þær sér til skelfingar að kúl- an stefnir beint á hóp manna sem eru að leika á næstu braut. Kúlan hittir einn mann- anna og hann felur þegar báðar hendur í skauti sér, fellur til jarðar og veltist þar um, greinilega sárþjáður. Konan þýtur þegar í stað til mannsins og biður hann margfaldiega afsökunar. „Leyfðu mér að hjálpa þór,“ segir hún síð- an. „Ég er sjúkraþjálfari og ég veit að ég get linað sársaukann ef þú leyfir mér það.“ „Ummph, óóóh nneiii, það verður allt í lagi með mig. Þetta líður frá eftir nokkrar mínútur,“ svaraði maðurinn andstuttur, enn í hnipri með lúkurnar í klofinu. En konan lét sig ekki og að lokum féllst hann á að lofa henni að hjálpa sér. Hún tók blíðlega um hendur hans og lét þær niður með síðum hans, losaði um buxurnar, smeygði hendinni inn fyrir og byrjaði að nudda hann. Síðan spyr hún hvernig hon- um líki þetta. Hann svarar: „Þetta er frábært, en mér er enn jafn skratti illt í þumalputtanum." Á sínum tíma starfaði Haraldur hagyrðingur Hjálmarsson frá Kambi í Útvegsbankanum. Haraldur var gieðimaður og eitt sinn er hann lenti á kendiríi varð honum það á að skrifa ótæpilega út úr tékkheftinu. Næsta morgun staulaðist Haraldur til vinnu og voru heilsan og samviskan ekki upp á sitt besta hjá honum. Fyrsti maðurinn sem hann mætti var Adolf Björnsson starfs- mannastjóri. Adolf var strangur og alvarleg- ur á svip er hann sagði: -Þetta er Ijótt með Tékkana. -Já, ekki er það nógu gott, svaraði Harald- ur, flóttalegur á svip. -Nógu gott! Þetta er bara alveg hræðilegt, sagði Adolf. -Já, kannski má segja það. -Við ætlum að hafa mínútu þögn í hádeginu til að mótmæla þessu, sagði Adolf. Þá þótti Haraldi full langt gengið og sagði: -Nei, heyrðu mig nú, Adolf. Er ekki einum of mikið gert úr nokkrum skitnum tékkum? Þegar þeir höfðu rætt málið frekar kom í Ijós að hér var um misskilning að ræða. Ad- olf hafði verið að tala um innrás Sovét- manna í Tékkóslóvakíu sem gerð hafði ver- ið þá um morguninn, en sá atburður hafði farið framhjá Haraldi. Kona ein á besta aldrei ók fáfarinn sveita- veg seint að kvöldi. Skyndilega kom upp bil- un í bílnum og ekki varð lengra farið. Konan hóf að ganga eftir veginum og eftir um kíló- metersgöngu sá hún heim að sveitabæ og steðjaði þangað. Hún barði að dyrum og út komu tveir ungir menn. „Getum við hjálpað þér fröken?“ „Bíllinn minn bilaði niðri á vegi. Getið þið hringt í næsta þorp fyrir mig og fengið drátt- arbíl til að draga bílinn á verkstæði?" „Það er búið að loka öllu í þorpinu svona seint. En við bræðurnir getum dregið bílinn hingað heim með dráttarvélinni og þú getur fengið að gista hjá okkur.“ Konan samþykkti þetta og bræðurnir drógu bílinn heim að bænum. Þegar ganga átti til náða stundu þeir bræð- ur því upp að aðeins eitt rúm væri í kotinu svo hún yrði að lúra þar hjá þeim. Konan sá að ekki var völ á öðru og þau fóru öll að fækka fötum. Svo segir konan: „Þið eigið verjur, er það ekki?“ „Verjur? Hvað er það?“ „Þið vitið, smokkar." „Til hvers eru þeir?“ „Til að koma í veg fyrir að ég verði ófrísk." „Við erum fáfróðir sveitamenn og vitum ekkert um svoleiðis hluti." „Jæja, það vill svo til að fyrir tilviljun er ég með tvo smokka í veskinu. Hérna, setjið þá á ykkur." Þeir gera sem hún segir og síðan eyða þau nóttinni saman og fór vel á með þeim. Næsta morgun hringja bræðurnir á dráttar- bíl sem kemur og sækir bílinn og konuna. Mánuði síðar sátu þeir á bæjarhellunni og horfðu á sólarlagið. Þá segir annar upp úr þurru: „Manstu eftir konunni sem gisti hjá okkur fyrir nokkrum vikum?“ „Já, ég gleymi henni seint." „Skiptir það þig nokkru máli þótt hún verði ófrísk?" „Nehei.“ „Gott. Þá skulum við bara taka þetta af okk- ur.“ Hafnfirðingur kom inn í herbergi ásamt kunningja sínum og varð þá að orði: -Mikið er dimmt hér inni. Hér hlýtur að hafa verið slökkt lengi. ■ 50 - Sjómannablaðið Víkingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.