Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Qupperneq 14
40. þing Farmanna- og Fiskimannasambands íslands
Árni Bjarnason
• •
var
orseti
Við upphaf sambandsþingsins. Benedikt Valsson framkvœmdastjóri FFSÍ, Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, Grétar Mar Jónssott fráfatandi
forseti og Ragnhildur Hjaltadóttir skrifstofustjóri.
Arni Bjarnason formaður Skipstjóra-
og stýrimannafélags Norðlendinga
var kjörinn forseti Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands í lok 40. þings
sambandsins sem haldið var á Grand
Hótel í Reykjavík dagana 28. - 30. nóv-
ember. Arni hefur undanfarin ár átt sæti í
stjórn sambandsins. Hann tekur við
starfinu af Grétari Mar Jónssyni sem hef-
ur gegnt því undanfarin tvö ár. Árni
hlaut 21 atkvæði í kjöri til forseta en
Grétar Mar hlaut 15 atkvæði. Einn seðill
var auður. Pegar úrslit í forsetakjörinu
lágu fyrir lýsti Grétar Mar því yfir að
hann stæði við bakið á nýjum forseta og
hvatti þingfulltrúa til hins sama. Varafor-
seti var kjörinn Guðjón Petersen.
Sambandsþingið hófst með því að
Grétar Mar Jónsson flulti setningarræðu
og síðan flutti Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra ávarp. Einnig fluttu ávörp
þeir Guðjón Ármann Eyjólfsson skóla-
meistari og Guðjón A. Kristjánsson al-
þingismaður. Þingforseti var kjörinn Að-
alsteinn Valdimarsson. Auk hefðbund-
inna þingstarfa hafði Helgi Jóhannesson
forstöðumaður lögfræðisviðs Siglinga-
stofnunar framsögu um framkvæmd
langtímaáætlunar í öryggismálum sjó-
rnanna, Þórir Skarphéðinsson frá sjávar-
útvegsráðuneytinu mætti í forföllum Kol-
beins Árnasonar, ásamt Stefáni Ásmunds-
syni, og flutti yfirlit yfir stöðu fiskveið-
samninga íslands og erlendra ríkja. Jón
Sigurðsson formaður skólanefndar Stýri-
mannaskólans ræddi um framtíð skip-
stjórnarmenntunar. Þá ræddi Valtýr
Hreiðarsson forstöðumaður Verðlags-
stofu skiptaverðs markmið um fiskverð,
Árni Guðmundsson framkvæmdastjóri
Lífeyrissjóðs sjómanna talaði um lífeyris-
mál sjómanna og Magnús Þór Hafsteins-
son fiskifræðingur og fréttamaður flutti
hugleiðingu um stjórn fiskveiða. Eflir
framsögur voru umræður og fyrirspurnir.
Þinginu lauk síðdegis föstudaginn 30.
nóvember með móttöku í boði sam-
gönguráðherra.
Auk Árna og Guðjóns eru aðalmenn í
stjórn FFSÍ þeir Eiríkur Jónsson, Stígur
Sturluson, Víðir Benediktsson, Aðal-
steinn Valdimarsson, Halldór Guðbjörns-
son, Örn Einarsson, Guðjón Ármann
Einarsson, Harald Holsvik, Finnbogi Að-
alsteinsson og Níels S. Olgeirsson.
Feðgamír Eiríkur Jónsson ogjón Frímann Eiríksson spjalla við Reyni Bjömsson.
14 - Sjómannablaðið Víkingur