Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Page 15
Ályktanir 40. sambandsþings Farmanna- og fiskimanna-
sambands íslands sem haldið var 28. - 30. nóvember 2001
Kjara- og atvinnumál
Kempumar Guðlaugur Gíslason ogjónas Þorsteinsson rifja upp gamlar minningar.
sambandsþing Farmanna- og
. fiskimannasambands íslands,
haldið í Reykjavík dagana 28., 29. og 30.
nóvember 2001, ályktar eftirfarandi um
kjaramál sjómanna.
Þingið fordæmir harðlega síendurtekn-
ar íhlutanir stjórnvalda í kjaradeilur
fiskimanna við viðsemjendur sína.
Þing samtakanna er nú enn einu sinni
haldið í skugga lagasetningar um kjara-
mál fiskimanna sem samþykkt var frá Al-
þingi þann 16. maí 2001. Þessi lög
sviptu hlulaðeigandi samtök sjómanna
þeim sjálfsögðu mannréttindum til þess
að gera frjálsa samninga við sína við-
semjendur. Með þessari íhlutun eru
stjórnvöld að afnema frjálsan samninga-
rétt sjómanna á fiskiskipum í fjórða sinn
á síðastliðnum sjö árum. Engin starfs-
stétt hefur þurft að þola slík inngrip jafn
oft og sjómenn.
Stjórnvöld hafa því enn og aftur ákveð-
ið að draga á langinn deiluna um fisk-
verð sem hefur staðið yfir í heilan áratug
og án þess að sjái til lands hvað snertir
lausn á deilunni. Sjómönnum ber að fá
hlut úr hæsta mögulega verði fyrir aflann
og þess vegna ítrekar FFSÍ enn og aftur
þá kröfu sína að allur fiskur til vinnslu
innanlands verði seldur eða verðlagður í
gegnum fiskntarkaði. Það er með öllu ó-
þolandi að sjómenn þurfi sífellt að gera
samninga við sína útvegsmenn um fisk-
verð þegar aflinn er seldur beint til
vinnslu innanlands. Samningsstaða sjó-
manna er afar veik þegar samið er unt
fiskverð við ríkjandi kringumstæður.
Sjómenn virða lögbundná friðarskyldu
og eðli málsins samkvæmt er útvegsmað-
urinn með nánast algjör undirtök um
framvindu málsins. Þrátt fyrir breyttar
reglur og viðmiðanir i störfum Úrskurð-
arnefndar sjómanna og útvegsmanna og
Verðlagsstofu skiptaverðs samkvæmt úr-
skurði gerðardóms er langt því frá að al-
menn sátt ríki um fiskverð í beinum við-
skiptum. Það verðmyndunarkerfi sem
nú er notast við og er tilkomið að tilhlut-
an stjórnvalda er aðalorsök þeirra harð-
vítugru vinnudeilna sem fiskimenn hafa
átt í mörg undanfarin ár. Það er stað-
reynd að í þessu kerfi er hluti sjómanna,
sem landar ferskum fiski, stórlega hlunn-
farinn um réltmætar greiðslur. Þingið
telur að hvergi annarsstaðar fyrirfinnist
launakerfi, þar sem stjórnvöld aðstoða
vinnuveitendur við að hafa fé af launþeg-
um sínum og bendir á að það hefði verið
stjórnvöldum verðugra viðfangsefni að
beita sér fyrir eðlilegri verðmyndun á
fiski.
40. sambandsþing Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands vill vekja at-
hygli á þeirri staðreynd að á löngu árabili
hafa safnast saman niörg óleyst vanda-
mál, fyrir utan fiskverð, varðandi kjör
skipstjórnarmanna á fiskiskipum. Allt
vinnuumhverfi skipstjórnarmanna hefur
tekið miklum breylingum á þessu árabili
án þess að lilheyrandi breylingar hafi
verið gerðar á kjarasamningum þeirra.
Auk þess hafa launþegar í öðrum starfs-
stétlum samið um ýmis aukin og sjálf-
sögð réttindi án þess að sambærilegar
breytingar hafi verið gerðar á kjarasamn-
ingi stéttarfélaga skipstjórnarmanna á
fiskiskipum.
40. sambandsþing Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands skorar á sam-
gönguráðherra að skipa nefnd hags-
munaaðila í samgöngu- og flutninga-
greinum til að gera faglega úttekt á sjó-
flutningum innanlands og á alþjóðlegum
flutningamarkaði. Nefndin skili áliti á-
sarnt tillögum lil nauðsynlegra breytinga
Sjómannablaðið Víkingur - 15