Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Síða 26
„Blessaður vertu, ég hef ekki nokkrar
áhyggjur af því, það verður alveg áreið-
anlega í lagi.” Svo var hann ekki frekar
til viðtals um þessa hættu. Þetta róaði
mig nú samt ekki sérlega mikið. Þannig
er þessi ótrúlegi hæfileiki til að loka á
óþægilegar spurningar. Einfaldasta að-
ferðin til að svæfa samviskuna er að
hengja sig í fyrstu söguna sem hljómar
sæmilega og getur nýst sem afsökun til
að skoða ekki nánar. Ég man alveg sér-
staklega eftir lýsingu á þessari aðferð i
viðtali sem Stefán Jónsson tók við frægan
borgara í Reykjavík fyrir Iöngu. Stefán
spurði: „Finnst þér að menn eigi að segja
satt?” Svarið kom eftir talsverða umhugs-
un: „Ég held að það sé hentugt að trúa
því sem maður segir.” Ég held að ótrú-
lega margir stjórnmálamenn hafi tileink-
að sér þessa aðferð þó nokkuð vel. En
hún er hrein og klár vinnusvik. Mönnum
sem er trúað fyrir fjöreggi heillar þjóðar
ber skylda til að leita með logandi ljósi
að því sem er best fyrir fólkið í landinu.
Mér finnst bæði Davið og Halldór As-
grímsson bregðast þessari skyldu.”
Hafa sjónarmið þín þá engan hljóm-
grunn fengið innan Sjálfstœðisflokksins?
“Meira en helmingur kjósenda Sjálf-
stæðisflokksins er á móti gjafakvótanum
samkvæmt skoðanakönnunum. En við
fengum bara milli 18 og 19% á lands-
fundinum um daginn. Reyndar fórum
við með býsna harðar tillögur á lands-
fundinn, vorum ekkert að leita að mála-
miðlun, heldur létum greiða atkvæði á
milli uppboðs og tillögu endurskoðunar-
nefndarinnar, sem eru litið annað en
gömlu hugmyndirnar hans Þorsteins
Pálssonar um kostnaðarhlutdeild. Davíð
og Halldór eru búnir að binda einhverjar
slaufur á þær og kalla útkomuna veiði-
gjald. Annars vorum við klaufar á fund-
inum og sérstaklega ég sem kom með illa
undirbúna ræðu sem klúðraðist alveg.
Hélt ég hefði meiri undirbúningstíma.
Svo komu allir stórvesírarnir upp í lokin,
Árni Matt og Davíð síðastir og sögðu
fundinum að fyrir fyrir flokkinn og for-
manninn þyrfti að greiða atkvæði gegn
okkur og með veiðigjaldsnefnunni. Eftir
allt þetta fannst mér tæp 20% í harðasta
kjarnanuin bara talsvert, þótt við hefðum
kannski átt sjans í 30% ef við hefðum
brillerað. Þú verður að gæta að því að út-
gerðin fjölmennti og ungliðahreyfingin
er meira og minna bókstafstrúarfólk, alið
upp á páfagaukahagfræði úr Hannesi
„Ég komst fljót-
lega að því að
hann (Davíð
Oddsson) hlustaði
ekki á neinn nema
Hannes Hólmstein
og vini sína úr
Háskólanum sem
voru orðnir lög-
frœðingar fyrir
hin og þessi út-
gerðarfyrirtœki. ”
Hólmsteini. Restin af þessum landfund-
arkjarna sér Davíð sem manninn sem dró
flokkinn upp úr göturæsinu og hélt hon-
um í ríkisstjórn í tíu ár og heldur enn.
Flest þetta fólk sér ekki sólina fyrir for-
ingjanum. Jafnvel ekki þeir sem studdu
okkur í atkvæðagreiðslunni. En þetta er
líka harðasti kjarninn.”
Verja útflutningstekjurnar
Liturðu þá svo á að sáttatillögur ríkis-
stjómarflokkanna sé einskis virði?
“Já. Þessar tillögur sem eru núna í um-
ferð og Halldór og Davíð eru búnir að
koma í gegnum flokksapparötin eru bara
gömlu hugmyndirnar um að útgerðin
borgi hluta af kostnaði ríkisins við sjáv-
arútveginn. Nú á samkvæmt endurskoð-
unarnefndinni að borga heldur minna
þegar illa árar, heldur meira þegar vel
gengur. Það dugar engan veginn til að
stoppa skuldsetninguna og verja úlflutn-
ingstekjurnar og hagsmuni þjóðarinnar.
Svo tekur það ekkert á þeim hryðjuverk-
um sem gjafakvótinn hefur framið í sjáv-
arplássunt vítt og breitt unr landið. Taktu
eftir því að stjórnarliðið segir í sífellu að
það sé ósanngjarnt að taka kvótann af út-
gerðarmönnum, þetta séu þeirra lögvarin
atvinnuréttindi, sem þeir hafi byggt
ákvarðanir sínar á. Segja líka að þeir sem
ekki voru í útgerð þegar kvótinn var á-
kveðinn, hafi engin réttindi misst. Það er
þvæla. Halda menn að fólk hafi byggt
hús á Hofsósi í þeirri trú að útgerðin og
frystihúsið yrðu eilíf? Ætli það hafi ekki
frekar verið vitneskjan um að þegar einn
hættir þá byrjar annar, og ef í nauðirnar
rekur fer maður að gera út sjálfur.
Þannig var það líka í þúsund ár - en ekki
lengur. Þegar kvótinn kostar þrisvar eða
fimm sinnum meira en báturinn, þá
byrja menn ekki svo glatt frá grunni.
Rétturinn sem var tekinn af landkröbb-
unum er lykillinn að byggðahruninu.
Réttindi sem menn hafa í bakhöndinni
geta skipt meginmáli.”
En hvað á að koma í staðinn?
„Aðalatriðin í minurn huga eru tvö:
Annars vegar að verja útflutningstekjurn-
ar sem eru undirstaða lífskjara í landinu.
Það þýðir að þjóðin verður að eiga fiski-
stofnana og fá arðinn af þeim. Annars
heldur skuldsetningin áfram og útflutn-
ingstekjurnar fara meira og meira í
vaxtagreiðslur til útlanda. Hins vegar
verður að rétta hlut þeirra sem gjafakvót-
inn hefur kippt fótunum undan að
ósekju. Með því á ég við að það verður
að gera sérstakar ráðstafanir, vitrænan
byggðakvóta. Mér finnst óhjákvæmilegt
að rétta hlut fólks sem lagði allt sitt í hús
í sjávarplássi í trausti þess að þar væri
leyfilegt að veiða og verka fisk. Þetta fólk
fer ekki fram á annað en að því sé ekki
gert ókleift að búa áfram í byggðarlagi
sem það hefur bundið tryggðir við. Það
er hins vegar annað mál hvort það á að
gera sérstakt átak til að viðhalda þessum
byggðum um aldur og ævi, jafnvel með
því að flytja þangað útlendinga. Mér
finnst vafasamt að borga fólki fyrir að
búa einhvers staðar sem það er ekki til í
að vera af sjálfsdáðum, hvort sem það er
vegna eingangrunar eða hitakostnaðar
eða fábreytni í atvinnulífinu. Það er ekki
brot gegn nokkurri manneskju þótt slíkt
sé látið ógert. Ég er líka hræddur um að
okkar auðlindir dugi skammt til að
skaffa öllum vel gerðum útlendingum at-
vinnu sem vildu fegnir koma hingað. En
allsherjar byggðavarnir að eilífu eru
miklu vafasamara mál, sem menn eiga
ekki að negla niður nema þá eftir ítarlega
Rydfríir
stálbarkar
Barhasuða Guðmundar ehf.
Vesturvör 27 • 200 Kópavogur
Sími: 554 1661 • Fax: 554 4220
G5M: 896 4964 • 898 2773
Kt. 621297 2529
fyrir
Hitaveitur • Pústkerfi • Vatnslagnir
Olíulagnir • Frystikerfi • Loftlagnir
Viðgerðir og smíði á þenslumúffum
26 - Sjómannablaðið Víkingur