Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Side 34
ekkert til að gera veður út af. Það er al-
veg greinilegt að japönsku kaupendurnir
hafa mikinn áhuga á þessum karfa og
þeir halda að sér höndum varðandi kaup
á karfa þar til að í ljós kemur hvernig
vertiðin gengur hjá okkur. Þeir vita alveg
hvað þeir eru að gera. Af því að þetta
heita úthafskarfaveiðar þá fá þeir djúp-
karfann þar sem veiðist á lægra verði en
djúpkarfann sem við erum að veiða nær
landinu á öðrum árstímum. Munurinn á
fiskinum er enginn en verðið er lægra,
segir Eirikur.
Einn frumkvöðlanna á
úthafskarfaveiðunum
Eiríkur hefur verið fyrsti stýrimaður og
síðan skipstjóri á skipinu frá því að það
kom til landsins sem Haraldur Kristjáns-
son HF fyrir 12 árum. Eiríkur var meðal
þeirra fyrstu sem fóru til úthafskarfaveið-
anna á sinum tima og hann lók þátt í því
með öðrum að reyna Gloríutrollin sem
reynst hafa yfirburðaveiðarfæri á út-
hafskarfaveiðunum.
Okkur leist nú ekki meira en svo á
Gloríutrollin til að byrja með. Guðmund-
ur Gunnarsson
hjá Hampiðjunni
kom með okkur
þegar verið var
að þróa trollið
og til að byrja
með var þetta
tómt basl og við
lágum stundum
dögum saman á
meðan verið var
að greiða úr
trollinu og gera
það klárt lil
veiða. Páll Eyj-
ólfsson var þá
skipstjóri á Har-
aldi Kristjáns-
syni HF og einn
daginn sagði
hann við Guð-
mund að þetta
væru nú meiri
gloríurnar sem
Hampiðjan væri
að gera með
þessu trolli.
Þetta var sagt í
gríni en svo fór-
um að við að
fiska af krafti í
trollið og Guð-
mundi likaði gloríugamnið svo vel að
hann ákvað að þetta nýja troll yrði nefnt
Gloría.
Gloríutrollin hafa reynst afburðavel á
úthafskarfaveiðunum og nú er svo komið
að flest íslensku skipanna og mörg er-
lendu skipanna eru með Gloríutroll. Eirik-
ur segist ekki hafa heyrt um nein óhappa-
hol á vertíðinni í sumar og menn hafi sem
betur fer sloppið við að fá of mikinn afla.
Það, sem skiptir máli, er að fá nægilegan
afla fyrir vinnsluna. Við ráðum við að
vinna sem svarar til um 1500 kassa af fiski
á sólarhring en það jafngildir unt 60 tonn-
um af fiski upp úr sjó. Það tekst ekki alltaf
að ná því magni en heilt yfir þá held ég að
menn geti verið sáttir við árangurinn, seg-
ir Eiríkur en vinnslugetan er reyndar mjög
mismunandi hjá íslensku skipunum eða
frá um 850 kössum og upp í um 1600
kassa á sólarhring.
Athugandi að færa
sjómannadaginn til
Að sögn Eiríks eru margir sjómenn óá-
nægðir með það hve sjómannadagurinn
hefur mikil áhrif á veiðarnar í úthafinu og
hann segir orðið tímabært að hugleiða það
hvort ekki sé rétt að færa sjómannadaginn
til.
Ég veit að margir eru sammála mér þeg-
ar ég segi að sjómannadagurinn slítur i
sundur vertíðina hjá okkur í úthafinu. Ég
vil ólmur halda 1 sjómannadaginn en ég
hef velt því fyrir mér hvort ekki væri betra
að hafa hann í lok ágúst þegar minnst er
að gera hjá sjómönnum. Siðasta vikan í
lok kvótaársins er yfirleitt frivika og þá
mætti halda upp á sjómannadaginn með
glæsibrag, segir Eirikur Ragnarsson.
Þetta efni er unnið í apríl/júní 2000. Ei-
ríkur Ragnarsson er enn skipstjóri á Helgu
Maríu AK en hann var einnig með skipið
á meðan það hét Haraldur Kristjánsson
HE
Þarftu hjálp í lestinni eða á dekkinu?
IMytt og endi
ú t d r a g a n
færiband (telesci
Telescope böndin fr:
Klaka stálsmíðju ehf
hafa verið geysilega
vínsæl, og eru þegar
um borð í flestum
ísfiskskipum. Bandið
auðveidar mjög
flutning á fiski og ís í
kör og kassa.
Klaki stálsmiðja ehf.
hannar og framleíðir
ryðfrí tæki og búnað
af ýmsu tagi fyrir
fiskiðnaðinn til sjós
og lands.
Hafnarbraut 25 • 200 Kopavogur
Sími 554-0000 • Fax 554-4167
Segull er alhliða þjónustufyrirtæki í rafiðnaði, til lands og
sjávar, sem annast nýlagnir og breytingar á rafkerfum í
skipum, verksmiðjum og öðrum byggingum.
Viðgerðaþjónusta Seguls nær til raflagna, rafvéla og
hverskonar rafbúnaðar.
Vönduð vinnubrögð og vanir fagmenn tryggja góðan árangur.
Leggjum áherslu á fljóta og örugga þjónustu.
Hólmaslóð 6 | 101 Reykjavík | Símar: 551 5460 - 696 2104 - 696 2110 | Fax 552 6282 | Netfang: segull@segull.is | Heimasíða: www.segull.is
Rafvélaverkstæði
Rafverktakar
Raftækniþjónusta
34 - Sjómannablaðið Víkingur