Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Blaðsíða 46
haven (NTB) i byrjun septemeber þegar tölvukerfi þeirra
hrundi. Fyrirtækið sem flytur um 40% allra gáma sem fara um
höfnina misstu mikið traust viðskiptavina sinna þar sem hvorki
meira né minna 8000 gámar voru á svæði þeirra þegar þetta
gerðist. Það voru því allir starfsmenn fyrirtækisins sem eyddu
næstu dögum við að skoða inn í alla þá 8000 gáma sem á svæð-
inu voru og olli þetta miklurn töfum á öllum flutningum félags-
ins. Þótt þessi bilun hafi aðeins valdið stöðvun á starfseminni í
12 tíma þá hurfu engu að síður margir viðskiptavinir þar sem
meðal annars fleiri hundruð gámar voru á þessum tíma lestaðir
um borð í skip sem voru í afgreiðslu á þessum tíma. Fyrirtækið
vonast þó til þess að geta unnið aftur traust viðskiptavina sinna.
frá Southampton til Japans.
Allt er nú til
Þeir eru glaðir í Southampton en þeim tókst að ná samningi
sem kallaður er “flutningur á sandi til Sahara”. Flutningurinn
sem á að fara um höfnina eru Honda bifreiðar sem settar eru
saman í Bretlandi fyrir Japansmarkað. Það hefði einhvern tím-
an þótt skrítið að flytja japanska bíla framleidda í Bretlandi til
Japans.
Felix E læddist um höfnina í Gíbraltar án leyfis
Sektaður
Skipstjóri Scandlines ferjunnar Felix E var nýlega leystur úr
varðhaldi gegn tryggingu fyrir að hafa farið inn í höfnina í Gí-
braltar án þess að láta frá sér heyra, án þess að hafa fengið
heimild til þess að koma til hafnar og að hafa ekki lóðs um
borð. Skipstjórinn Hans Ekuland, sem er sænskur, fékk 1000
punda sekt fyrir atvikið en skipið hefur verið í siglingum milli
Gíbraltar og Alsír, Það er betra að láta vita af sér þegar verið er
að fara til hafnar sérstaklega eftir að atburðirnir í New York áttu
sér stað þar sem allar öryggisreglur hafa verið hertar til muna.
Þögn um málið
Maersk Sealand skipafélagið hefur ekki viljað gefa yfirlýsingu
varðandi atviks sem varð um borð í þýska gámaskipinu Ipex
Emperor, sem er á leigu hjá félaginu, í höfninni Gioia Tauro á
Ítalíu í október. Maður af egypsku bergi brotnu var handtekin
af ítölsku lögreglunni og ákærður um hryðjuverkastarfsemi.
Þrátt fyrir að mikið fréttabann hafi verið yfir þessurn atburði
fengust þær fréttir að sá sem var handtekinn er 43 ára gamall
Iaumufarþegi, Rigk Amid Farid, en hann var með kanadískt
vegabréf. Það var þann 18. október sem hann fannst eftir að
hljóð heyrðust frá gámi sem var um borð í skipi á leið til
Kanada. í gámnum var rúm, salerni, hitagjafi og vatnsbirgðir til
þriggja vikna. Einnig fundust í fórurn Farid GSM sími, gerfi-
hnattasími, tölva, myndavélar, fölsuð skilríki, kort af flugvöll-
um, öryggispassi fyrir flugvöll og atvinnuskírteini fyrir flug-
virkja. Gámurinn átti að umskipast í höfninni í skip á leið til
Rotterdam og þaðan áfram til Kanada. Telja menn að hér hafi
verið á ferðinni einstaklingur sem hafi verið injög hættulegur
og kyndir þetta enn frekar undir ótta manna við frekari hryðju-
verk.
Flugmóðurskipið sem hætt var við
Erfiðlega hefur gengið að koma gömlu sovétsku flugmóður-
skipi fyrir kattarnef ef svo má að orði komast. Aldrei lokið við
að smíða skipið sem um ræðir, en hér er á ferðinni flugmóður-
skip sem hafð'i fengið nafnið Varyag en þegar Sovétríkin féllu á
sínum tíma þegar smíði þess stóð yfir. Skipið, sem er 55 þús-
und tonn að þyngd, var á leið til Taiwan frá Úkraníu í drætti
hollenskra dráttarbáta en ekki hafði srníði skipsins verið komin
lengra en það að ekki voru komnar neinar vélar niður í það. Á
leið um Miðjarðarhaf lenti skipalestin í miklu óveðri sem varð
til þess að ekki var um annað að ræða en að taka sjö menn sem
voru um borð í flugmóðurskipnu frá borði með þyrlu þar sem
menn óttuðust að það rnyndi sökkva í óveðrinu. Það hafði tek-
ið 15 mánuði að fá leyfi tyrkneskra yfirvalda að fá að draga
skrokkinn í gegnuin Bosphorussund og þegar sloppið var þar í
gegn skall óveðrið á. Þegar veðrinu slotaði tókst að koma skip-
verjunum sjö aftur urn borð, en þeir voru allir skipverjar á sama
dráttarbátum Havila Champion. Þegar þeir voru að bisa við að
koma dráttartauginni aftur um borð varð það slys að einn skip-
verjanna féll af flugþilfarinu og niður í sjó, níu metra, og til
hans sást ekki rneir. Þegar þetta er skrifað eru dráttarskipin
enn með flugmóðurskipið á leiðinni til Taiwan.
Ferðir til Kanada
Kanadíska lögreglan og útlendingaeftirlitið eru í mikilli her-
ferð gagnvart launtufarþegum sem koma með gámaskipum til
Halifax. í síðasta mánuði náðu þeir sex laumufarþegum. Tveir
Rúmenar gáfu sig fram við lögreglumann á götu í Halifax og
sögðust þeir hafa komið með danska gámaskipinu Gudrum
Mærsk. Þá barst lögreglunni tilkynning frá kranamanni við
höfnina sem benti á gat á gámi sem hann sá þegar hann var að
hífa gám úr gámaskipinu Zim America. í gámnum fundu lög-
reglumenn tvo bakpoka með fötum og öðrum persónulegum
munum. Tveir laumufarþegar fundust um borð í spænska skip-
inu Cala Palamos. Flestir þeir laumufarþegar sem hafa fundist í
Kanada hafa komið frá Ítalíu og eru að reyna að komast il Am-
eríku til að flýja fálæktina sem þeir hafa búið við í Evrópu.
Hraðasekt
Skipstjóri á ferju í Marlborough sundi á Nýja Sjálandi var ný-
lega sektaður fyrir of hraða siglingu þegar hann var að koma til
hafnar í Marlborough fyrir skömmu. Hámarkshraðinn inn í
sundinu sem er innsigling inn í höfnina eru 18 mílur en kallinn
var eitlhvað að flýta sér því hann mældist á milli 34 og 37.5
rnílna hraða á þessari leið. Ekki var upplýst hversu há sektin
var en skipstjórinn hefur áfrýjað niálinu og er búis við að það
verði tekið fyrir hjá þarlendum dómstólum innan skamms. Það
er svona þegar menn eru i tímaþröng á áætlunarleiðum og skip-
in eiga að láta úr höfn samkvæmt áætlun en ekki þegar skipin
46 - Sjómannablaðið Víkingur