Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Side 64
Vald Paulsen er gamalgróið og þekkt fyrirtœki sem hóf starfsemi árið 1910.
Það hefur nú flutt bœkistöðxar sínar í Skeifuna 2
Uppruna verslunar Poulsen ehf má
rekja alt aftur til ársins 1910, þegar
Valdemar Poulsen nokkur að dönskum
uppruna tók að versla með eldfastann
leir og steina ástamt ýmsum tnálmum.
Samhliða þessu rak herra Poulsen járns-
miðju hér í Reykjavík.
í lok síðari heimstyrjaldar komu þau
Ingvar Kjartansson og kona hans Hrefna
Matthíasdóttir inní rekstur fyrirtækisins.
Þau hjón eignast fyrirtækið að fullu 1963
og frá þeim tíma fram til vors 2001 var
það rekið af þeirn hjónum og dætrum
þeirra, þeim Sigríði, Margréti og
Matthildi. Þau ráku fyrirtækið með mik-
lum myndarbrag fram til siðasta dags er
þau seldu það og afhentu nýjum eigen-
dum, þeim Lovísu Matthíasdóttur, Reyni
og Ragnari Matthíassonum ásamt
Kristjáni Jónssyni.
Þau Lovísa, Reynir og Ragnar eru börn
Matthíasar, stofnanda og fyrrum eiganda
Bílanausts, og hafa þau öll þrjú að stærs-
tum hluta hlotið margbrolna reynslu þar
af viðskiptum og rekstri fyrirtækja í geg-
num störf sín hjá því fyrirtæki. Þau eru
því öllum hnútum kunnug út í ystu æsar
hvað varðar rekstur og uppbyggingu
fyrirtækis á tæknifaglegum vettvangi.
Kristán kemur hinsvegar með víðtæka
reynslu af vatnsmeðhöndlun sundlauga,
ásamt sérþekkingu um nuddpotta í geg-
num sín fyrri störf og eigin rekstur á því
sviði, sem leitt hefur til mikilla og aukin-
na umsvifa fyrirtækisins hvað það varðar.
í öll þau ár sem Poulsen hefur verið
þátttakandi í íslensku atvinnulífi, bæði til
sjós og lands hefur skapast stór hópur
tryggra viðskiptavina í öllum geirum
atvinnulífsins við fyrirtækið, og enn
bætist í þann góða hóp. Það er ekki síður
að þakka viðmóti og þjónustulund starfs-
fólks fyrirtækisins og víðtækri þverfagle-
gri þekkingu þess á öllum vörum og
vöruflokkum fyrirtækisins.
Að stofni til hafa starfsmenn unnið hjá
fyrirtækinu í til fjölda ára, samanber
Magnús Oddson (Maggi í Poulsen) sem
starfaði hjá fyrirtækinu allar götur frá
1941 er hann var aðeins 10 ára gamall.
Sá ágæti maður hefur nú lagt sloppinn á
hilluna, til að taka sér eitthvað annað
nýtt og spennandi fyrir hendur.
Stefna fyrirtækisins frá upphafi er það
hóf að versla með vélbúnað og tæki þar
að lútandi, er að leggja höfuðáherslu á
stuttan afgreiðslutíma og leggja þannig
sitt af mörkum lil að hjól atvinnulífsins
stoppuðu ekki um of vegna langrar biðar
eftir varahlutum eða nýbúnaði sem til
þurfti til að tryggja áframhaldandi
keyrslu tækja og tóla. Til að tryggja slíkt
hefur fyrirtækið byggt upp einn stærsta
og öflugasta vélahluta lager hér á land-
inu. Ásamt vélbúnaði sem íhlutum og
verkfærum hefur einnig verið lög rík
áhersla á heildarlausnir fyrir
iðnaðarfyrirtæki á öllum sviðurn.
Jafnframt því sem landsmenn þekkja
Poulsen sem véla- og verkfæraverslun, er
fyrirtækið ekki síður þekkt meðal flestra
landsmanna sem verslun með baðherber-
gis innréttingar og áhöld þar að lútandi,
og nú síðast verslun með nuddpotta og
sundlaugavörur fyrir smæstu sem stærstu
sundlaugar.
Innréttinga hluti fyrirtækisins er þó
ekki eins gamall þeim fyrri sem nefndur
hefur verið, en þó samt búinn að ná vel
yfir þrítugs aldurinn.
Er það sama uppá teningnum með
innréttingadeildina hvað varðar
vörugæði og þjónustu. Einnig þar hefur
vöruúrvalið uppá síðkastið verið stórau-
kið með glæsilegum innréttingum frá
kjörsmiðum og framleiðendum í víðri
veröld, ásamt því að deildin hefur hugað
vel að nostalgíunni með smáhlutunum
og smáatriðunum þannig að svipmót og
heildarlausn baðherbergisins verði hvergi
ábótavant.
í dag hefur fyrirtækið flutt alla starfse-
mi sína í Skeifuna 2 Reykjavík, og um
leið fengið margfalt það rými sem áður
var við Suðurlandsbrautina, sérstaklega
fyrir verslunina og uppstillingar í henni,
ásamt mjög góðu aðgengi fyrir viðskipta-
menn. Allir eldri sem nýir viðskiptavinir
POULSEN og starfsmenn eru hvattir til
að líta við í Skeifunni og fá kaffibolla og
spjall.
t+t
SLYSflVftRNflFÉLfiGIÐ
LflNDSBJÖRG
Sjómenn!
Við óskum ykkur tii hamingju með sjómannadaginn.
Munið eftir því að tilkynna breytingar á símanúmerum
til Tilkynningaskyldunnar.
64 - Sjómannablaðið Víkingur