Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Síða 70

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Síða 70
Fjölskyldulíf Maður einn leitaði til læknis og kvartaði undan því að hann teldi sig vera homma. - Hvað fær þig til að halda það?, spurði læknirinn. - Ja, svaraði maðurinn, -afi minn var hommi. - Kynhegðun gengur ekki í erfðir, útskýrði læknirinn. - Ég skil, svaraði maðurinn, -en pabbi var líka hommi. - Það er mjög óvenjulegt, viðurkenndi læknirinn. -En það þarf ekki að þýða að þú sért líka hommi. - Allt í lagi, sagði maðurinn, -en bræður mínir eru samt hommar. - Ég á ekki til orð, sagði læknirinn hlessa. - Er enginn í fjöl- skyldunni sem lifir kynlífi með konu? - Jú, reyndar, svaraði maðurinn. -Systir mín. (zSfiaxmenn, 'fjezýumenn, fukimenn ocj vazðskijismenn, þððið óskmn ifkkuz og aðstandendurn ykkaz yleðiíeyza ióía ozf fazsæíðaz á komanði ázi. Q~þökkum samsíarfið á líðanði ázi /sUn05 Félag íslenskra skipstjórnarmanna www.officer.is<http://www.officer.is> Hlutfall launa sjómanna Hlutfall launa af heildartekjum út- gerða samkvæmt Þjóðhagsstofnun er í flestum tilfellum lægra á síðasta ári en var árið 1999. Á bátum 10-200 brl. Fer hlulfallð úr 46,5% í 43,9% og á bátum yfir 200 brl. Úr 48,1% árið 1999 í 42,2% árið 2000. Á loðnubát- um lækkaði hlutfallið milli ára úr 47,9% í 41,1%. Á ísfisktogurum var hlutfall launa nær óbreytt eða 38,9% árið 1999 en 38,5% árið 2000. Á frystitogurum hækkaði hlutfall launa milli ára úr 39% í 40,9% Meðaltekjur allra sjómanna lækk- uðu úr rúmum þremur milljónum króna árið 1999 í 2.950 millj. árið 2000. Þetta kemur fram í svari sjávar- útvegsráðherra við fyrirspurn frá Svanfríði Jónasdóttur. Nefnd til sátta Þingmennirnir Össur Skarphéðins- son, Steingrímur J Sigfússon og Sverr- ir Hermannsson hafa lagt frant tillögu til þingsályktunar þess efnis að Al- þingi álykti að skipa nefnd fimm þingmanna, einn frá hverjum þeirra þingflokka sem eiga sæti á Alþingi, til að leita sátta um stjórn fiskveiða. Að- alforsendur nefndarstarfsins verði fyrning veiðiréttar úr núgildandi kerfi. Veiðiheimildum verði endurráð- stafað í formi aflahlutadeildarsamn- inga á grundvelli jafnræðis byggðanna og útgerðar til nýtingar þeirra. Fullgilding á samþykkt Guðntundur Hallvarðsson er fyrsti flutningsmaður tillögu til þingsálykt- unar um að Alþingi álykti að fela rík- isstjórninni að fullgilda fyrir íslands hönd samþykkl Alþjóðavinnumála- stofnunarinnar nr. 163, um aðbúnað skipverja á hafi úti og í höfn. Skráningarskylda skipa Guðjón A. Kristjánsson flytur til- lögu lil þingsályktunar um að Alþingi feli samgönguráðherra að semja regl- ur og breyta lögum ef nauðsyn krefur í þá veru að skráningarskylt verði sér- hvert skip sem notað er í atvinnu- skyni, svo og önnur skip sem eru lengri en átta rnetrar að skráningar- lengd. 70 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.