Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2003, Page 23
mikla virðingu fyrir og það var alltaf æð-
islega gaman þegar hann kom i land.
Þegar hann tók sér frí var farið með fjöl-
skylduna í bíltúra, stundum út í sveit.
Hann var með afbrigðum gjafmildur og
það voru alltaf jólin þegar hann kom úr
siglingum, hlaðinn gjöfum handa allri
fjölskyldunni. Ég fór með honum túr á
Nýfundnaland þegar ég var gutti, 10 eða
11 ára. Þar var hann allt öðru vísi heldur
en i landi og þá kynntist ég honum fyrst
eins og hann var í raun og veru. Hann lét
sér ákaflega annt um mig í túrnum og
þarna um borð spjallaði ég við fræga sjó-
hunda sem kunnu ótal sögur og ég
gleypti þær í mig. Ég hef hitt marga sem
voru til sjós með Túlla og þeir bera hon-
um allir vel söguna. Enda bar hann
mikla umhyggju fyrir köllunum sínum.
Seinna fór ég svo með honum í siglingu
til Englands sem var rnikið ævintýri.
Hann var katlþrifinn og lét kallana pússa
koparinn á heimleiðinni. Baldi bróðir
sigldi líka með honum og ég man alltaf
þegar hann kom heim úr þeirri siglingu
með fyrstu Bítlaplötuna. Þetta hefur ver-
ið 1962 og þegar platan var sett á fóninn
breyttist líf mitt. Fram að því hafði ég
hlustað á sömu músik og eldri systkini
mín, það er rokkið. Elvis, Fats Domino,
Ricky Nelson, Jerry Lee og þeir allir.
Túlli á yngri árum.
Tók stundum lagið
- Þessir túrar með pabba þínum hafa
ekki kveikt áhuga þinn á sjómennsku?
- Nei og hann var ekki að ýta því að
°kkur bræðrum, ekki frekar en að ég
hali reynt að troða músik upp á mín
börn. Þegar ég fór með honum til sjós í
fyrra sinnið hafði ég með mér Sínalkó og
^lalta. Við lentum í vondu veðri og þar
sem ég lá og egndist af sjóveiki heyrði ég
Sínalkóflöskurnar rúlla fram og aftur.
Bjarni riddari. Á honuin sigldu Baldvin Halldórsson og synir lians Túlli, Bósi og Haddi.
Síðan gat ég aldrei smakkað þann gos-
drykk. Þegar ég var 15 ára réðist ég svo
sem messi á Gullfoss ásamt vini rnínuin
Helga Sæm. Eftir þrjá daga var ég hækk-
aður í tign og dressaður upp í þjón.
Pabbi var ánægður að heyra þetta, en það
var ekkert framhald á minni sjó-
mennsku. En ég hef alltaf verið hrifinn af
sjómönnum og þeir eru sá þjóðfélags-
hópur sem heldur þessu öllu
gangandi.
- Hafði Túlli eyrafyrir
músik?
- Hann var mjög músikalsk-
ur og sem ungur maður átli
hann það til að henda sér
uppá svið og taka nokkur lög.
Hann var þekktur fyrir að taka
Louis Prima, sérstaklega Bóna-
sera. Þess vegna held ég mikið
uppá það lag og tek það
stundum. Pabbi og bræður
hans sungu mikið í afmælum
og pabbi spilaði á hljóðfæri.
Ég hef mikið frá honurn í
þessum efnum. í ætt pabba
eru söngvarar eins og Kristinn
Hallsson. Þeir bræður Hörður
og Rögnvaldur Sigurjónsson
píanóleikari voru góðir vinir
pabba, sem og Guðmundur
Jónsson óperusöngvari. Við
pabbi hlustuðum saman á
músik þegar færi gafst og þeg-
ar ég fór að gera plölur fylgd-
ist hann vel með mér og gaf
mér oft góð ráð sem og uppá-
stungur um lagaval á plötur
mínar
- Nú ert þú þekktur fyrir
skondin tilsvör oft á tíðum. Hefur þú þann
hœfileikafrá Túlla?
- Það held ég hljóti að vera. Hann var
oft mjög hnyttinn í tilsvörum. Ég get
nefnt sem dæmi þegar menn frá SÁÁ
bönkuðu uppá heima og voru að safna
fyrir byggingu afvötnunarstöðvar. Pabbi
fór til dyra, hlustaði á erindið og sagði
svo:
„Nei, strákar mínir. Á þessum bæ tök-
um við timburmennina út á dívanin-
um.“!
Við spjöllum enn um stund um Túlla.
Sjómannssonurinn talar um föður sinn af
virðingu og væntumþykju eins og gömlu
skipsfélagarnir. Eftir að Túlli kom í land
starfaði hann sem vigtarmaður í Hafnar-
firði og oft var gestkvæmt á vigtinni hjá
honum. Halldór Baldvinsson andaðist á
Hrafnistu 78 ára gainall, eftir að hafa
marga hildi háð við Ægi konung.
Björgvin Halldórsson syngur á Broadway.
Sjómannablaðið Víkingur - 23