Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2003, Page 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2003, Page 26
Túlli við spilið á togaranum Ágústi. Sviptur heiðursmerkjum Björgvin: Uppgangur minn og endalok í skátahreyfingunni eru tengd snemm- bærri fíkn í tóbak. Ég var ylfingur í Hafnarfirði, þreytti próf og fékk stjörnur og ræmur. Pabbi var í siglingum og keypti sígarettur í stóru upplagi. Ein- hverju sinni vorum við strákarnir lens og ég stal kartoni heima. Chesterfield eða eitthvað. Pabbi var í landi og ég var böstaður með kartonið. í skátabúningn- um með öll heiðursmerkin og strípurnar! Pabba fannst þetta svo mikið „disgrace". Pjófur í skátabúningi. Úlfur í sauðagæru. Hann gerði sér lítið fyrir og svipti mig öllum heiðursmerkjum á staðnum. Pabbi gat verið harður í horn að taka. Ef hann vildi kenna manni lexíu var ekkert hálf- verk á því og maður lærði þá lexíu „once and for all.“ Enda var það tilgangurinn. Hafði læknishendur Túlli er skapríkur. En tilfinningasemin hangir ekki utan á honum. Flangsast lítt utan í fólki að óþörfu. En er hlýlegur og glaðlyndur. Hefur lúmskan stríðnislegan húmor. En þegar hann er í landi er hann dálítið að reyna að vera karlinn í brúnni þar líka. Systkinin bera óttablandna virð- ingu fyrir föður sínum. Lífið er óneitan- lega öðruvísi þegar hann er í landi. Þau tipla svolítið á tánum þangað til hann leysir landfestar. Þetta er fríið hans. En systkinunum fimm er engu að síður gef- inn langur taumur og þau fá mikið að ráða sér sjálf. Þeim er treyst. Að því til- skildu að þau fari ekki yfir tilteknar grensur. Og þær grensur eru alveg klárar. Þegar Túlli er í landi stjana allir við hann. En þegar fjölskyldan fer með hon- um til sjós snýst dæmið við. Þá ber hann þau á höndum sér. Á sama hátt og hann rækir skipverjana sína. Getur þó verið harður í horn að taka. Systurnar Magga og Helga reynast náttúraðar til sjó- mennsku. Hvorug kennir votts af sjó- veiki. En bræðurnir eru með hökurnar fram yfir borðstokkinn allan túrinn og æla eins og múkkar. Túlli siglir allt stríðið. Skólafélagarnir undrast að námshesturinn skuli láta stað- ar numið. Hann hefði getað orðið bæri- legur græðari. Hefur lækn- ishendur. Er natinn við sár. Gerir firnavel að meiðslum sinna manna úti á sjó. Og krakkanna í landi. Kemur pabbi með græjurnar, segja krakkarnir þegar hann sækir kassann með áhöld- um sinum upp á loft. Öllu vel til skila haldið, sótt- hreinsað og þvegið. Úti á rúmsjó getur þurft að kippa mönnum í liðinn. Og á einum háseta tekur Túlli tuttugu og fjögur spor. Þetta eru engar skemmti- siglingar. Aðfangadags- kvöld úti á reginhafi. Út tekur ungan skipverja. Honum er náð inn við illan leik. Túlli freistar þess að blása í hann lífi. En um seinan. Björgvin: - Þetta var ekk- ert pluss og palísander með tölvuskermi, hitaveitu og tvöföldu gleri. Þetta voru síðutogarar, kolryðgaðir botnvörpungar með óvarin spil - heavy duty dæmi! Hetjur hafsins. Ég prisa mig sælan fyrir mina þægilegu innivinnu. Ég man að ég keyrði einu sinni með pabba niður að höfn inn í Reykjavík. Þá var hann að fara að sigla hjá Júpíter og Mars. En svo var hann kominn heim aftur, aðeins tveim dögum siðar. Verulega sleginn. Skipverji hafði lent í spilinu. Pabbi var sjálfdæmdur læknir um borð. Gerði það sem unnt var til að bjarga lífi mannsins. En það var út- séð um það. Gat í raun lítið annað gert en lina kvalir hans þar til yfir lauk. Pabbi hefur eflaust lifað ýmislegt misjafnt um sína daga en ég sá hann aldrei jafn skek- inn og þarna. Hann hélt í sína hinstu sjóferð árið lyr- ir aldamótin. Ég á erfitt með að sætta mig við að hann skuli vera farinn. Að hann komi ekki aflur eins og þegar hann fór á sjóinn í gamla daga. En sterkir per- sónuleikar eins og Túlli Bald fara náttúr- lega aldrei alveg. (Millifyrirsagnir eru blaðsins) LOWARA sjódælur Útgerðamenn - Fiskeldisstöðvar Sjódælur úr AISI 316L ryðfríu stáli 6 m3/klst. til 228 m3/klst. 0,75 kW til 75 kW A Gæði - Öryggi - Þjónusta Danfoss hf Skútuvogi 6 Sími 510 4100 www.danfoss.is 26 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.