Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2005, Page 37
menn deild sem er grunnnámsdeild með
tækniívafi fyrir þá sem hafa lokið grunn-
skólaprófi og ætla í framhaldsskóla.
Gæðakerfi ISO 9000
Fjöltækniskóli íslands fékk gæðavott-
un samkvæmt ISO 9001 í febrúar 2005
og er fyrsti framhaldsskólinn á landinu
til að öðlast formlega gæðavottun. Fjöl-
tækniskólinn helur frá upphafi reksturs
skólans unnið að hönnun og innleiðingu
gæðastjórnunar samkvæmt ISO 9001
staðli og er það gert að kröfu IMO, Al-
þjóða siglingamálastofnunarinnar. Vottað
gæðakerfi er skilyrði þess að íslensk at-
vinnuskírteini séu viðurkennd erlendis
og að Siglingastofnun hafi heimild til út-
gáfu alþjóðaskírteina á grundvelli ís-
lenskrar menntunar á þessum sviðum.
í vottunarferlinu kom í ljós að nauð-
synlegt var að yfirfara skipulag áfanga
við skólann og samræma betur að þeim
alþjóðareglum sem fyrir hendi eru. Á líð-
andi ári hefur farið fram yfirgripsmikil
vinna við yfirferð og endurskoðun allra
áfanga sem kenndir eru við skólann á
vegum Starfsgreinaráðs sjávarútvegs og
siglinga. Ólafur J Briem hefur leitt þessa
yfirferð og endurskoðun fyrir hönd
starfsgreinaráðsins í samvinnu við stjórn-
endur skólans. Vinna þessi er langt kom-
in og ljóst að lagðar verða til breytingar á
skipulagi og innihaldi áfanga sem kennd-
ir eru við skólann lil samræmis við kröf-
ur um alþjóðaréttindi.
Samhliða þessari umfjöllun er náms-
efni áfanganna skoðað og breytingar
gerðar eftir þörfum. Stefnt er að því að
kennsla hefjisl eftir nýju áfangaskipulagi
á haustönn 2006.
Áhrif vottunar á innra starf skólans
hafa verið mjög mikil og er ljóst að innra
starf skólans er mun skipulegra og gagn-
særra eftir en áður og hefur haft í för
með sér töluverðar breytingar á öllu
innra starfi skólans. Aðrir skólar hafa
sótt í smiðju Fjöltækniskólans og eru að
taka upp hluta gæðakerfisins og er gæða-
kerfi Fjöltækniskólans grunnur að skipu-
lögðu gæðastarfi þeirra skóla sem taka
kerfið til notkunar. Slysavarnarskóli sjó-
ntanna hefur einnig hlotið gæðavottun
ISO 9001.
Aðbúnaður í skólanum
Miklar breytingar hafa átt sér stað i að-
búnaði og tækjabúnaði Fjöltækniskólans
og hefur gagnger endurnýjun tölvubún-
aðar og skjávarpa í skólanum átt sér stað
auk endurbóta á ýmiskonar aðstöðu og
búnaði og ber þar hæst endurnýjun
herma skólans sem fram fór sumarið
2004. Settur hefur verið upp fullkominn
fjarfunda- og upptökubúnaður sem er
mikilvægur fyrir alla endurmenntun
skólans. í sumar var hafist handa við
fyrstu lagfæringar innanhúss og er gert
ráð fyrir að á næstu árum verði skóla-
húsnæðið endurnýjað að fullu innan-
dyra.
Tæknimál í kennsluumhverfi skólans
eru í stöðugri þróun og sífellt unnið að
eflingu tölvutækni í kennslu hvað varðar
kennara og því sem að nemendum snýr.
eflingu tölvutækni í kennslu hvað
varðar kennara og að því sem að nem-
endum snýr.
Almenn braut
Fjöltækniskóli íslands bauð í fyrsta
sinn almenna braut við skólann og var á-
kvörðun um almennu deildina tekin að
beiðni menntamálaráðuneytisins. 19
nemendur skráðu sig til leiks, einn hætti
án þess að byrja og annar fluttist svo til
strax yfir á skipstjórnarbraut. 17 nem-
endur hafa verið í deildinni á önninni og
hefur starfið gengið vonum framar.
Ahnenna deildin er fyrir nemendur
sem ekki hafa lokið fullnægjandi undir-
búningi fyrir framhaldsskóla og er til-
gangur námsins að bæta úr því. FTÍ hef-
ur skipulagt þetta nám með samtvinn-
ingu bóknáms og verknáms.
Varðskipsbraut
Á vorönn er boðin kennslu á 4. stigi
skipstjórnar - varðskipsdeild en útskrif-
aðir nemendur 4. stigs bæta við sig rétt-
indum skipherra á varðskip. 4. stigið er
boðið á nokkurra ára fresti og þá í sam-
vinnu við landhelgisgæsluna en allir sem
lokið hafa 3. stigi skipstjórnar geta skráð
sig til 4. stigs.
Unnið hefur verið að aðlögun og end-
urskoðun námsins á liðnum mánuðum
og verður nokkur breyting á náminu frá
því sem síðast var kennt.
Varðskipsbraut
Á vorönn 2006 verður boðið upp á
kennslu á 4. stigi skipstjórnar - varð-
skipsdeild en útskrifaðir nemendur 4.
stigs bæta við sig réttindum skipherra á
varðskip. 4. stigið er boðið á nokkurra
ára fresti og þá í samvinnu við Landhelg-
isgæsluna en allir sem lokið hafa 3. stigi
skipstjórnar geta skráð sig til 4. stigs.
Unnið hefur verið að aðlögun og end-
urskoðun námsins á liðnurn mánuðum
og verður nokkur breyting á náminu frá
því sem síðast var kennt.
Viðbótarnám í rafvirkjun
Nemendum skólans sem ljúka 4. stigi
vélstjórnar hefur á síðustu önnuin verið
boðið að taka viðbótarnám til sveinspróf
rafvirkjunar í samræmi við reglur ráðu-
neytisins þar urn. Gert er ráð fyrir að úl-
skriftarnemum verði áfram boðið þetta
viðbótarnám.
Endurmenntun
Fjöltækniskóli íslands hefur áfrarn
boðið öfluga endurmenntun og hefur
fjöldi námskeiða verið í boði. Gerður var
samningur við Sjómennt um endur-
menntun undirmanna og er sjóðurinn nú
rekinn af Fjöltækniskólanum.
Nokkur ný námskeið hafa litið dagsins
ljós á síðasta ári. Þar ber hæst námskeið
um endurnýjun skipstjórnarréttinda þar
sem þeir sem ekki hafa nægjanlegan sigl-
ingatíma til að viðhalda fullum réttind-
um geta sótt 3ja daga námskeið til end-
urnýjunar á réttindum sínum. Fyrirhug-
að er að bjóða samskonar námskeið lil
endurnýjunar vélstjórnarréttinda á vor-
önn 2006.
Að lokum
Það er von stjórnenda Fjöltækniskól-
ans að skólanum sé að takast að marka
sig í samræmi við þá stefnu sem lagt var
upp með og takist að byggja upp öflugan
starfsnámsskóla sem fullnægi þörfum at-
vinnulífsins lil færni og þekkingar.
Hlutverk skóla er að þjóna viðskipta-
vinum sínum sem best; annarsvegar
þeiin sem verða þjónustunnar aðnjót-
andi, þ.e. nemendum, og hinsvegar at-
vinnulífinu sem ræður nemendur skól-
ans til starfa.
Sjómannablaðið Víkingur - 37