Náttúrufræðingurinn - 1931, Side 17
NÁTTÚRUFR.
95
Gulandarhreiður. (Björn Björnsson, Norðfiröi).
Hér á landi eru tvær andategundir, nefnilega gulönd og toppönd, sem einu
nafni eru nefndar fiskiendur. Sunrir kalla gulöndina stóru fiskiönd, en bezt væri
ef nafnið gulönd væri látið festast. Einnig er gulöndin oft kölluð vatnsönd.
Fiskiendurnar eru frábrugðnar öllum öðrum íslenzkum öndum i því, að þær
hafa langt og rnjótt nef, með hvössum horntönnum.
þessu. — í hverju öðru menningarlandi myndi ríkið vilja veita
til slíkrar rannsóknar öflugan stuðning.
4. janúar 1931.
G. G. B.
Skolpdýrín.
Þegar við lítum yfir auðugt blómlendi, með hinum fjölda-
mörgu örsmáu jurtum, eða látum eyrað hlýða á hinn marg-
raddaða fuglasöng sumardagsins, eða virðum fyrir okkur marg-
breytni og fjölda skordýranna, eða ef við látum hugann minn-
ast hins margbrotna breytileika lífsins í sjónum, þá verðum við
að viðurkenna hina undramiklu fjölbreytni, sem hin lífræna
náttúra ber skilningarvitum vorum daglega. Og hvað er þó það,
sem við sjáum eða heyrum hér á landi, hjá þeirri gnægð dýra og
jurta, sem hitabelti jarðarinnar, sólarlönd heimsins, hafa fram að