Náttúrufræðingurinn - 1931, Side 24
102
NÁTTÚRUFR.
kjarninn skiftir sér í átta parta, sem skipa sér í tvo flokka, og
verða fjórir í hvorum (9. mynd). Allir partarnir í öðrum flokkn-
um verða að smákjörnum, en allir partarnir í hinum flokknum
verða að stórkjörnum, svo í sellunni verða fjórir smákjarnar
og fjórir stórkjarnar. En við svo búið má ekki standa, ])ar sem
stórkjarninn á að vera einn, en ekki fjórir, svo nú verða að
koma nýjar endurbætur. Þrír af smákjörnunum leysast upp
og hverfa, en einn verður eftir, svo þannig kemur fram dýr með
einum smákjarna og fjórum stórkjörnum (10. mynd A.). Þetta
dýr skiftir sér nú í tvö ný dýr, og fara tveir af stórkjörnunum
í annað, og hinir tveir í hitt, en smákjarninn skiftir sér í tvennt,
og hlýtur hvort af nýju dýrunum sinn part (10. mynd B.). Hvert
af nýju dýrunum skiftast nú í tvö, og við þá skiftingu koma
loks fram dýr með einum stórkjarna og einum smákjarna (10.
mynd C.).
Það sem þá hefir skeð við þessa svonefndu skinæxlun, er
ekkert annað en það, að dýrin hafa býttað kjörnum, eða öllu
heldur býttað molum úr einum kjarnanum. Þetta eru auðsjáan-
lega nokkurskonar kynbætur, því skinæxlunin kemur að öllum
líkindum í staðinn fyrir vanalega æxlun.
' Á. F.
Köfnunarefní og íarðvegsbakterítir.
Köfnunarefni er frumefni. Það er litlaus og lyktarlaus loft-
tegund, litlu léttari en súrefni. Óblandað kæfir það eld og
hindrar öndun, og dregur það nafn sitt af því. Andrúmsloftið
er blanda af nær fjórum hlutum köfnunarefnis og einum hluta
súrefnis, auk ofurlítils af öðrum efnum. Þetta mikla innihald
þess af köfnunarefni dregur úr áhrifum súrefnisins, sem er
óhæft til öndunar, sé það óblandað.
Ein frumeind (atom) af köfnunarefni er táknuð með N
(dregið af Nitrogenium, sem er latneskt heiti efnisins). Þyngd
þess er 14, ef miðað er við þyngd súrefnisfrumeindarinnar (O),
sem er 16 og vatnsefnisfrumeindarinnar (H), sem er 1, (nán-
ar: N = 14,008, O = 16,000, og H = 1,008). Ein sameind (mo-
lekul) af köfnunarefni er sett saman af tveimur frumeindum
og er samruni þeirra táknaður þannig:
N + N = N„