Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1961, Side 8

Náttúrufræðingurinn - 1961, Side 8
52 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN en hinar ferðirnar þrjár voru farnar upp úr Fljótshverfinu. Með þeirri farartækni, sem þá var beitt í Vatnajökulsferðum: að draga farangur allan á sjálfum sér, var það ærin þrekraun að fara í fjórar Grímsvatnaferðir á tveimur árum, en Jóhannes var hörkuduglegur göngugarpur framan af árum. Árangurinn af þessum Grímsvatna- ferðum birti hann aðallega í ritinu: On The Last Eruptions in Vatnajökull, sem Vísindafélag íslendinga gaf út 1936. Enn fór Jó- hannes til Grímsvatna haustið 1945, til að kanna vegsummerki eftir nýafstaðið Skeiðarárhlaup. Síðasta frumritgerðin, sem hann birti, fjallar um athuganir hans í þeirri ferð. Jóhannes varð fyrstur manna til að vekja athygli á því, að stöðugt hitaútstreymi frá brennisteins- hverum undir íshellu Grímsvatnakvosarinnar ætti sinn þátt í vatns- söfnun þar milli gosa, og hafa síðari rannsóknir staðfest að fullu þá skoðun. Rannsókn Jóhannesar á Vatnajökli leiddi einnig margt í ljós um Grænalón og jökulhlaupin úr því, en Grænalón athugaði hann í ferðunum með Niels Nielsen og Trausta Einarssyni. Við rannsókn sína á steingervingalögum á Snæfellsnesi lireifst Jóhannes af hinni margbrotnu náttúru þessa náttúrufagra skaga og varði síðar miklum tíma til almennra jarðfræðilegra rannsókna þar um slóðir. Hafði hann að rnestu lokið við að gera jarðfræðilegan uppdrátt af Snæfellsnesi öllu, er hann féll frá, og mun lrann koma að góðu gagni við teiknun jarðfræðikortsins af Miðvesturlandi, sem Guðmundur Kjartansson vinnur að á vegum Náttúrugripasafnsins. En því miður vannst Jóhannesi ekki aldur til að skrifa þá jarðfræði- legu lýsingu Snæfellsness, sem hann vann að. Af öðrum ritgerðum Jóhannesar jarðfræðilegs efnis er einkum að geta ritgerðar um Kerlingarfjöll þar sem hann setur fram þá sennilegu skoðun, að þessi líparítfjöll séu einskonar bergstöpull, sem ýtzt hafi upp á yfirborð jarðar, og ritgerðar um Eldborg á Mýrum, sem hann birti í því hefti Náttúrufræðingsins, sem helgað var 100 ára afmæli Þorvalds Thoroddsens. Ritgerð átti Jóhannes í fórum sínum, sem aldrei komst á prent, og fjallar hún um líparítöskulög í Skagafirði og mun skrifuð áður en undirritaður og Hákon Bjarnason tóku að birta ritgerðir um öskulagarannsóknir. Sýnir þessi ritgerð, að Jó- hannesi var vel Ijós þýðing öskulagarannsókna fyrir póstglasíala jarðsögu Islands. Svo sem sjá má af þessu stutta yfirliti hefur Jóhannes víða kom- ið við í jarðfræðirannsóknum sínum og má vera, að hann hafi

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.