Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1961, Side 9

Náttúrufræðingurinn - 1961, Side 9
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 53 með því drepið kröftum sínum um of á dreif, en sízt sæti það á þeim, er þetta ritar, að álasa honum fyrir það. Raunverulega er það sem hann áorkaði um jarðfræðirannsóknir ótrúlega mikið, einkum ef þess er gætt, að aðalstörf hans, kennslustörfin, voru ein sér miklu meiri en fullt starf meðalmanns. Og öll lians vísindastörf bera ein- kenni þeirrar natni, vandvirkni og samvizkusemi, sem ætíð var hans aðal. Jóhannes var formaður Hins íslenzka náttúrufræðifélags 1942— 1945 og 1958—1960; og flutti mörg erindi í því félagi og leiðbeindi á fræðsluferðum. Hann var ritstjóri Náttúrufræðingsins 1942—1945. Vísindafélag íslendinga kaus hann félaga 1940. Jóhannes Áskelsson kvæntist 12. des. 1936 Dagmar Eyvindsdóttur útfararstjóra í Reykjavík Árnasonar. Lifir hún mann sinn, ásamt syni þeirra, Erni og stjúpsyni, Gunnari Magnúsi. Heimili þeirra hjóna var mikið myndarheimili og gestum tekið þar af mikilli rausn. Var frú Dagmar manni sínum ágæt stoð í hvívetna í hans erilsama starfi. Jóhannes Áskelsson var alla tíð maður dulur og hlédrægur, við- kvæmur í lund og þó fylginn sér, ef því var að skipta, fámáll fremur á mannamótum, en glaðværari í fárra hópi og brá þá oft fyrir sig notalegri, góðlátri kímni. Hann var sérstaklega vandaður maður til orðs og æðis og vildi aldrei vamm sitt vita í neinu. Síðastliðið sumar var farin alþjóðleg fræðsluferð jarðfræðinga um ísland í sambandi við alþjóðaþing jarðfræðinga í Kaupmannahöfn. Jóhannes Áskelsson var einn þeirra, er sæti áttu í undirbúnings- nefndinni, og tók þátt í ferðinni með það aðalhlutverk, að sýna útlendingunum steingervingalögin á Tjörnesi, í Stöðinni og í Skammadal. Hann undirbjó þetta af sinni einstöku samvizkusemi. Jarðfræðingarnir fóru frá Mývatni um Dettifoss og Ásbyrgi til Tjörness og komu þangað í úrhellisrigningu og slagviðri. Þar beið Jóhannes við veginn í bíl sínum, syðst í Breiðuvík. Og þangað hafði liann tekið með sér helztu einkennistegundir Tjörneslaganna, snyrti- lega innpakkaðar, svo að Iiver sem vildi gat fengið skeljar með sér til minja, og þar flutti hann stutt erindi um lögin og þýðingai þeirra. Ég sé enn fyrir mér svipinn á Jóhannesi þar sem Iiann stóð þarna í rigningunni og fræddi liina erlendu jarðfræðinga um hugðarefni sín. Hann bókstaflega ljómaði af áhuga og frásagnar-

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.