Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1961, Síða 12

Náttúrufræðingurinn - 1961, Síða 12
56 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Högni Böðvarsson: Margt býr í jörðinni Það er oft sagt, að dýralíf íslands sé fábreytt, og má það til sanns vegar færa, ef miðað er við ýmis önnur svæði jarðarinnar og átt er við villt landdýr. Hvað sjáum við af dýrum á göngu okkar i>m tún og engi, heiðar og skóga eða innanhúss? Mest ber líklega á fuglun- um, en á góðviðrisdögum dregst athygli okkar oft eins mikið að fiðrildum, randaflugum og öðrum skordýrum, sem fljúga milli blómanna eða festast á fluguveiðaranum, sem hangir í loftinu. Ná- lægt stöðuvötnum getur mýbitið líka minnt okkur heldur óþægi- lega á tilveru sína. Uppi á heiðum og úti í hraunum rekumst við stundum á hagamýs og tófur, og minkurinn er nú alveg búinn að tryggja stöðu sína sem íslenzkur ríkisborgari. En þar með er líka það mesta upp talið, eða er ekki svo? Vissulega vitum við (að minnsta kosti þeir okkar, sem eru veiðimenn), að ánamaðkar lifa í moldinni og svartgljáandi járnsmiði sjáum við stundum hlaupa milli steina. Ætli flestir verði þá ekki undrandi, ef þeim er sagt, að þúsundir dýra lifi og dafni undir hverju fótspori, sem við stíg- um á gróinni jörð? En þannig er þessu farið, og þessir litlu vinir okkar þarna niðri eru meira að segja svo mikilvægir fyrir allt líf okkar, að ekki er víst, að landið væri byggilegt, ef þeir væru ekki til. Ég ætla nú með eftirfarandi línum að fræða lesendurna nokkuð um dýralíf það, sem hefst við í jörðinni, og urn þýðingu þess fyrir mynd- un og frjósemi jarðvegsins. Fræðimenn hafa í meira en hundrað ár fengizt við að rannsaka og lýsa jarðvegi með tilliti til efnasamsetningar, kornastærðar, og þess háttar, en það er ekki fyrr en á allra síðustu árum, að mönnum hefur orðið ljóst, að dýralíf það, sem hefst við í jarðveginum, geti haft nokkra þýðingu fyrir myndun hans og eðli. Einn af þeim fyrstu, sem sáu fram á þetta, var Charles Darwin. Hann rannsakaði áhrif ánamaðka á myndun gróðurmoldar og komst að þeirri niðurstöðu, að þeir hefðu mikla þýðingu með greftri sínum og blöndunarstarf- semi. Rit Darwins um ánamaðkana urðu til þess, að margir tóku

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.