Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1961, Page 22

Náttúrufræðingurinn - 1961, Page 22
66 NÁTT Ú RUFRÆÐINGURIN N fæturna í þeirra stað. Þeir eru því langir og er haldið fram á við og upp á við (7. mynd). Næringin er sennilega jurtaleifar, en sum- ir lialda, að þau séu rándýr. Ein tegund er þekkt á íslandi. Skorfætlur (Thysanura). Mörg þessara dýra lifa í jarðvegi á jurtaleifum og hafa þessa vegna þýðingu fyrir jarðvegsmyndun. A íslandi eru aðeins þekktar tvær tegundir skorfætlna: Silfurskottan, sem lifir í húsum (sjá Geir Gígja: Meindýr o. s. frv.) og kampafló- in, sem lifir í klettaskorum við eða nærri sjávarströndinni. Hún lifir þar sennilega á þörungum og skófum, sem vaxa á klettunum. Með því að losa sig við úrgangsefni í klettaskorunum, getur kampa- flóin vafalaust stuðlað að því, að fyrstu æðri jurtirnar nái þar fót- festu. Hún getur þannig talizt til jarðvegsmyndandi dýra. Stökkskottur eða stökkmor (Collemhola). Stökkskotturnar eru af tveimur gerðurn: Svonefnt gullmor (Symphypleo7ia) og blá- mor (Arthropleo7ia). Hjá fyrri deildinni er bolurinn nokkurn veginn kúlulaga (8. mynd), hjá hinni síðarnefndu er hann lang- ur og sívalur (9. mynd). Margar stökkskottutegundir hafa stökk- gaffal neðan á afturhluta bolsins. Er þetta tvískiptur hali, sem í hvíld liggur fram og upp undir kviðinn. Með því að spyrna skyndi- lega móti grunninum með liala þessum, geta stökkskotturnar tekið nokkuð löng stökk. Halinn er mjög mislangur hjá liinum ýmsu tegundum og vantar stundum alveg. Flestar stökkskottur eru mjög litlar, allt frá hálfum og upp í nokkra millimetra á lengd. Stökk-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.