Náttúrufræðingurinn - 1961, Side 24
68
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
vera jarðvegsdýr, en ýmsar fuglategundir, til dæmis lundar og sæ-
svölur, grafa langa ganga og holur í jarðveginn og Jiafa þannig áhrif
á lrann. Óbeinlínis geta fuglarnir liaft álirif á jarðvegsmyndun með
því að fækka jarðvegsdýrum.
Meðal spendýra, sem lifa í jarðvegi, eru moldvörpurnar flestum
kunnar að nafninu til, enda þótt þær finnist ekki liér á landi. Þær
grafa göng sín á mismunandi dýpi, allt eftir gerð jai'ðvegs og árs-
tíma. Stundum liggja göngin 10 til 20 sentínretra undir yfirborðinu,
á veturna allt að 60 sentímetrum, til þess að forðast klaka. Göngin
eru venjulega 5 sentímetrar í þvermál hjá evrópsku moldvörpunni.
Moldvörpurnar eru nrjög duglegar að grafa sig gegnum jörðina.
Þannig geta sunrar tegundir grafið 60 til 70 nretra löng göng á 24
klukkustundum. Moldvörpurnar hafa talsverða þýðingu fyrir jarð-
veginn, þar sem þær losa um hann með greftri sínum og auðvelda
þannig lofti og vatni að komast að. Þær lifa á ýmsum jarðvegsdýr-
um, aðallega ánamöðkum. Aðalóvinir moldvarpnanna eru ýmsir
ránfuglar. Á Pósléttunni í Norður Ítalíu lröfðu menn gengið lrart
að ránfuglastofninum. Þetta olli offjölgun meðal moldvarpnanna,
sem grófu svo ákaft í varnargörðum Pó-fljótsins, að þeir brustu á
ýmsum stöðum. Olli þannig skerðing ránfuglastofnsins óbeinlínis
flóði yfir marga ferkílómetra lands.
Af öðrum spendýrum, sem lifa í jörðinni, nrá nefna ýmsar nag-
dýrategundir, sem grafa göng neðanjarðar. Hagamúsin íslenzka og
mórauða rottan falla undir þennan flokk, og geta þær haft nokkra
þýðingu fyrir jarðvegsbreytingar.
Hér að framan hefur verið gerð nokkur grein fyrir helztu dýra-
flokkum, er lifa í jarðveginunr og ætla má eða sannað hefur verið,
að hafi þýðingu fyrir myndun hans og eðli. Er þá eftir að athuga,
í hverju þessi þýðing dýranna er fólgin og livort starfsemi þeirra geti
haft áltrif á frjósemi jarðvegsins.
Til þess að gera sér betur grein fyrir áhrifum dýranna á jarð-
veginn, er bezt að skipta þeim í tvo flokka: Stærri jarðvegsdýr og
minni jarðvegsdýr. Stærri jarðvegsdýrin eru svo stór og sterk, að
þau grafa sín eigin göng og lrolur r jörðinni. Þeim tillreyra ána-
maðkar, stærri skordýr, moldvörpur, lragamýs og önnur slík dýr.
Minni jarðvegsdýrin liiá liinsvegar og Jrrærast í göngum þeim og