Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1961, Qupperneq 28

Náttúrufræðingurinn - 1961, Qupperneq 28
72 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN J. mynd. Sæsporðdrekar i'rá silúrtímabilinu. hafa m. a. fundist steingerðar leifar af mjög einkennilegum krabba- dýrum, sem nefnd eru þríbrotar. Líkami þeirra var þrískiptur og þar af er nafnið dregið. Dýr þessi voru í fyrstu fremur smávaxin, en tóku smám saman miklum framförum, þau stærstu urðu 45 cm á lengd og náðu þar með mestum þroska allra dýra liins kambríska tíma. Elztu menjarnar, sem jarðlögin geima um þríbrota, eru taldar vera 500 milljón ára gamlar. Þessi merkilegu dýr eru einkennisdýr fornaldarinnar öðrum dýrum fremur, því að í lok aldarinnar voru þau aldauða. Á siiúrtímanum, sem er næsta tímabil eftir kambríska tímann, hélt þróun lífsins áfram hröðum skrefum. Af kynjadýrum þess tima má nefna graptolitha, fremur smávaxin holdýr, sem lifðu í furðu- legu samfélagi. Auk holdýra voru ýmsar tegundir skrápdýra og lin- dýra mjög algengar og fjölskrúðugar fylkingar í höfum silúrtímans. Af skrápdýrum þessum hefur ein tegund, sæliljurnar, haldið sinni upprunalegu mynd allt til vorra daga. Ein mestu dýr þessa tíma voru án efa svonefndir sæsporðdrekar. Risarnir í þeirra flokki urðu um þrír metrar á lengd og liafa verið grimmúðug rándýr. Ollu umsvifameiri voru þó ef til vill álfa-smokk- ar þeir (nautíloídar), sem herjuðu meðal sævarbúa silúrtímans. Þeir höfðu um sig nálega fimrn metra langan, snældumyndaðan kuðung, sem var hið innra skipt í mörg hólf. Hafðist dýrið við í

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.