Náttúrufræðingurinn - 1961, Síða 31
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
75
2. mynd. Skógur frá steinkolatímabilinu.
Að líkindum hefur landganga fiskanna upphaflega orðið með
þeim hætti, að sumar tegundir þeirra hafa öðlast hæfileika til þess
að skreiðast milli tjarna. Þessir hæfileikar liafa síðan þroskast og
fullkomnast gegnum milljónir ára, unz svo var komið, að hið upp-
runalega öndunarkerfi hafði ummyndast í lungu. Þá fyrst var þeirri
fullkomnun náð, sem nauðsynleg var til algers landnáms.
Meðan þetta gerðist, náðu fylkingar hinna lægri dýra á landi
stöðugt meiri fullkomnun og greindust í næsta ólíka flokka og ætt-
bálka. Hin frumlegustu krabbadýr silúrtímans höfðu tekið á sig
nýtt gervi, sem betur Iiæfði lífinu á landi. Þau voru orðin að skor-
dýrum. Sum þessara skordýra tóku upp á því, að stökkva af einni
plöntu á aðra. Þetta uppátæki þeirra reyndist að vera fyrirboði
mikilla tíðinda í þróun lífsins, því að það varð upphafið að mynd-
un vængja.
Frumskógar steinkolatimabilsins.
Þegar hinu söguríka devontímabili var um það bil lokið, tók
gróður jarðar að færast mjög í aukana. Úrkomur jukust stórlega
frá því sem áður var, og víða um lreim mynduðust fenjaflákar og