Náttúrufræðingurinn - 1961, Side 36
80
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
ar stað settar 13 fylkingar, þar af 9 fylkingar þörunga, en alls eru
fylkingar plönturíkisins þar taldar 17.
Af þessu öllu er ljóst, hversu fjölbreytni lágplantnanna er mikil
og skyldleiki þeirra innbyrðis oft lítill og ógreinilegur. En háplönt-
urnar, sem okkur virðast harla ólíkar, eru aftur á móti í grundvallar-
atriðum mjög líkar og skyldleiki þeirra oftast auðfundinn. Þetta er
í sjálfu sér eðlilegt, því að háplönturnar eða nánar tiltekið fræ-
plönturnar, eru ríkjandi gróður yfirstandandi jarðsögutímabils, aft-
ur á móti eru blómaskeið liinna ýmsu lægri plöntufylkinga löngu
liðin. Talið er, að þekktar séu nú samanlagt um 170 þúsund tegund-
ir fræplantna, nær allt dulfrævingar, 10 þúsund tegundir byrkninga,
25 þúsund tegundir mosa og um 60 þúsund tegundir af hinum svo-
kölluðu þelingum, þar af um 20 þúsund þörungategundir.
Skilmerki þörunganna
Það sem einkum skilur þörungafylkingarnar hverja frá annarri, eru
litarefnin í frumurn plantnanna, tegundir þær af kolvetnum, sem
plönturnar mynda við kolsýruvinnsluna og geyma sem forðanær-
ingu, og gerð og staðsetning svipanna á þeim frumum þessarra
plantna, sem slík hreifitæki haía. Allt er þetta mjög líkt innan
hverrar þörungafylkingar, en margt af því ólíkt, þegar bornar eru
saman tvær eða fleiri fylkingar.
Litarefni
Eins og nöfn þörungafylkinganna bera með sér, þá eru sex þeirra
kenndar við liti: chloro = grænn, chryso = gullgulur, pyrrho =
eldrauður, phyco = brúnn, rhodo = rósrauður, cyano = blár.
Sjöunda fylkingin, Euglenophyta, er kennd við augndílinn (gleno
= sjáaldur), en það er ljósnæmur blettur með rauðgulu litarefni,
sem einkennir þessa Joörunga. Þessi aðgreining þörunganna eftir
litum virðist fljótt á litið nokkuð yfirborðskennd, en efnarann-
sóknir liafa leitt í Ijós, að hér er víðast livar um skýrt afmarkaðar
fylkingar og flokka að ræða, sem hver hefur sínar ákveðnu tegundir
litarefna. Litarefnin, sem um er að ræða, eru fernskonar: klórófyl
eða blaðgrænur, karótín, xanthófyl (xantho = gulur) eða blaðgulur
og fykóbilín. Hefur hver þörungategund eina eða tvær tegundir
blaðgrænu, eitt eða fleiri karótín og um hálfa tylft eða fleiri blað-
gulur. Auk J^ess hafa rauðjmrungar og blájjörungar tvö fúkóbilín.