Náttúrufræðingurinn - 1961, Side 37
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
81
I töflu II er sýnt, hver eru helztu litarefnin í þörungafylkingun-
um sjö. Er taflan tekin eftir G. M. Smith, en talsvert stytt.
Tafla II. Helztu litarefni pörunganna.
Litarefni Græn- þörungar Díl- þörungar Brún- þörungar Kísil- þörungar Skoru- þörungar Rauð- þörungar Blágræn- þörungar
lllaðgrœnur:
a + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + +
b + + + -t- -*• -7- + +
c -f- -7- + + + + +
d -7- -r -H +
Karótin:
a + ? 4- -7- -t- + + ?
Í3 + + + + + + + + + H—1—h + + + + + + + + +
Blaðgulur:
Lúteín + + + ? 4- 4- 4- + + ?
Fúkóxanthín -7- -F + + + + +. ? ?
Fykóbilin:
Fykóerythrín 4- 4- 4- 4- 4- + + + +
Fykócyanín 4- 4- 4- T" 4- + + + +
Magn litarelnanna er táknað þannig: + + + = mikið, + + II talsvert
+ = lítið, -f- ekkert, ? = óvíst.
Blaðgrænur eru jafnan taldar 5: a, b, c, d og e. Af þeim er a-blað-
grænan langsamlega algengust, en hún er ásamt b-blaðgrænu í
grænukornum allra æðri plantna. Blaðgrænurnar c, d og e finnast
aðeins í þörungum. Til er svo sjötta tegundin af blaðgrænu, en
það er gerlablaðgrænan, sem aðeins finnst í purpuragerlunum.
Karótínin eru rauðgul litarefni, sem venjulega fylgja blaðgræn-
unni í grænukornum jurtanna. Eru þau náskyld A-vítamíninu.
Þrjú þeirra finnast í þörungum, a-, (3- og e-karótín.
Xantófylin, sem við nefnum blaðgulur, eru skyld karótínunum.
Af þeim eru til mjög margar tegundir, og koma að minnsta kosti
15 þeirra fyrir í þörungum. Þekktastar eru lúteínið í grænþörung-
unum og rauðþörungunum og fúkóxanthínið (þaragulan) í brún-
þörungunum og kísilþörungunum.
Fúkóbilínin eru skyld litarefnum gallsins. Af þeim finnast aðal-