Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1961, Side 42

Náttúrufræðingurinn - 1961, Side 42
86 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN sönnun þess, að þær séu allar komnar af svipungum og hafi þró- ast frá þeim, hver út af fyrir sig. Uppruni blágrænþörunganna og rauðþörunganna, sem engin bifgró hafa, er aftur á móti óviss. Talið er líklegt, að forfeðra mosa og byrkninga sé að leita rneðal útdauðra grænþörunga, en fræplönturnar eru sem kunnugt er komnar af byrkningunum. 6. mynd. Grænþörungar. Cladophora (efst úl vinstri). Aceta- bularia (neðst til vinstri). Ulva (til hægri). (Hylander). Lýsing þörungafylkinganna Chlorophyta (Grænþörungar). Þeir hafa grasgræna litbera með tvennskonar blaðgrænu, aðallega a en nokkuð af b, karótín a og /8 og nokkrar blaðgulur. Flestir mynda mjölvi á sama hátt og æðri plöntur. Þeir eru flestir mjög smávaxnir, margir þeirra einfrum- ungar. Gró og kynfrumur venjulega með 2 eða 4 svipum, er sitja á framenda frumunnar og eru oftast jafnlangar. Æxlunin getur ver-

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.