Náttúrufræðingurinn - 1961, Side 45
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
89
8. mynd. Rauðþörungar. Polysiphonia (til vinstri). Chondrus (í rniðið). Gelidiuni
(til liægri). (Hylander).
og ofurlitlu af þarabláma (phycócyani). Forðanæringin er sérstök
tegund af mjölvi. Fjölfrumungar, margir allstórir. Kynlaus fjölgun
með svipulausum gróum. Kynæxlun algeng, en kynfrumurnar hafa
engar svipur. Ættliðaskipti víðast hvar, en báðir ættliðir eins útlits.
Sæþörungar. Algengar tegundir hér við land eru af ættkvíslunum:
Polysiphonia, Rhodymenia, Delesseria, Gigartina, Chondrus, Coral-
lina, Lithothamnium.
Heimkynni þörunganna
Þörungarnir lifa nær allir í vatni, söltu eða ósöltu. Aðeins fáar
tegundir lifa á þurru landi. Þar sem lífskjörin í sjónum eru mjög
ólík og í fersku vatni, verður allgreinileg skipting á milli sæþör-
unga annars vegar og vatnaþörunga hins vegar. Þó eru nokkrar
tegundir, sem standa þarna á milli og lifa á hálfsöltu vatni, svo sem
við árósa, þar sem saman kemur ósalt vatn og sjór. Á annan hátt
greinast og þörungarnir í tvo ólíka hópa, en sú aðgreining fer eftir
því, hvort þeir svífa í vatninu eða sjónum eða eru fastvaxnir. Þör-
ungarnir í fyrri hópnum tilheyra svifinu (plankton), nánar tiltekið