Náttúrufræðingurinn - 1961, Blaðsíða 11
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
105
Myncl 1. Meðaltöl einstakra mánaða á hitastigi (°C) jarðvegsins í 100 cni og
200 cm dýptum við Elliðaárstöðina í Reykjavík, árin 1929—1942 (sbr. töflu 2).
Fig. 1. Monthly mean values (°C) in the 100 cm and 200 cm soil depths at
the Ellidaár Power Station near lleyhjavík cluring 1929—1942 (cf. Table 2).
vera sú, að með þáverandi tækjum voru athuganir mjög seinlegar,
því að draga varð mælana upp úr holum sínum hverju sinni, sem
athugun skyldi gerð. Af þeim sökum hefur eflaust verið erfitt að
fá þær gerðar víða um land. í öðru lagi voru mælarnar mjög brot-
hættir en hins vegar, a. m. k. fyrr á árum, voru skilaboð og send-
ingar oft vikur og jafnvel mánuði á leiðinni, sérstaklega, ef kaupa
þurfti nýja mæla erlendis frá. Ekki voru heldur fjárráð á þeim
tímum til að eiga mikið af tækjum ónotað á „lager“.
í ljósi nútímatækni má kannski varpa fram þeirri spurningu,
livort mælingar með þeim áhöldum og tækni, sem urn var að
ræða á þessu sviði fyrir tuttugu til þrjátíu árum, geti verið nógu
nákvæmar til að fullt rnark sé á þeim takandi.
Vissulega geta skekkjurnar verið miklar, en eigi að síður hlýtur
að rnega nota margar af þessum eldri mælingum sem vísbending-
ar. í því sambandi er t. d. mjög líklegt, að meðal-árshitasveiflan
fyrir 100 og 200 cm dýpt við Elliðaárstöðina sé eitthvað svipuð því
sem mynd 1 sýnir.
Eins og við er að búast er hitasveiflan miklu rninni í 200 cm
dýpt en í 100 cm dýpt. Hitinn í 100 cm dýpt kemst liæst í ágúst,
en hins vegar ekki fyrr en í september eða október, þegar komið
er niður í 200 cm dýpt. Hér sjáum við því enn eina staðfestingu
á því, sem áður var lítillega getið, að hitabreytingar og hitastig jarð-
vegsins er mismunandi bæði miðað við tíma og dýpt.