Náttúrufræðingurinn - 1961, Side 45
NÁTTÚR UFRÆi) 1NGURINN
135
ótt og röndótt skógardýr (tígrisdýr, jagúar o. fl. o. fl.). Snæhérinn
í heimsskautalöndunum er alltaf hvítur, en suðlægari stofnar hans,
þar sem snjór liggur aðeins á vetrum, skipta litunr eftir árstíðum.
Þetta getur einnig farið eftir hæð í fjöllum. Fá dýrin fyrr sumarlit
neðarlega í fjallendi en þau sem ofar búa. Fluttir voru snæhérar
frá Noregi til Færeyja árið 1855 og skiptu þeir í fyrstu litum, þar
eins og í heimalandi sínu. En svo fór þetta að smábreytast. Nú eru
hérarnir í sumarbúningi allt árið, hvernig sem á því stendur.
Geta má þess, að oftast er auð jörð í Færeyjum. Snjór liggur þar
sjaldan lengi.
Sumir telja að hinn hvíti ,,vetrarbúningur“ ýmissa dýra í köld-
um löndum tefji útgeislun lúta frá líkamanum og sé þeim þannig
til skjóls.
Flest eyðimerkurdýr bera ljósbrúna liti og líkjast mjög sandin-
unr og grjótinu. Af 50 tegundum dýra í Salrara bera 39 þennan
eyðimerkurlit. Flest hin lifa í útjöðrum eyðimerkurinnar.
Nýlega var gerð tilraun með uglur, en þær geta stundað veiðar
í nryrkri, e. t. v. einkum vegna næmrar lreyrnar. Uglurnar voru
lokaðar inni í klefa ásanrt nokkrum hjartarmúsum. Látin var gerfi-
jarðvegur á gólfið og bar helmingur gólfsins (2,7x3 m) sanra lit
og nrýsnar, en hinn helmingurinn nrjög frábrugðinn lit. Prik voru
rekin í gólfið, eins lit og það, og prikin ennfremur samtengd með
grönnum þverprikum, svo þetta varð eins konar eftirlíking af skógi
og veitti músunum talsverða vörn. Birta var lröfð sáralítil og sem
líkust rökkri í skóglendi. Reynslan sýndi að verndarlitirnir voru
músunum nokkur vörn, jafnvel í svo lítilli birtu, að rrrenn gátu
ekkert greint inni í klefanum. En uglurnar gátu það.
III. Eignarlúð og athajnasvœði.
Flest dýr eru lreinrarík um burðinn eða varptínrann og arnast
við öðrum dýrum, jafnvel sömu tegundar á lóð sinni. Mörg dýr
lrafa líka ákveðið veiði- eða athafnasvæði, sem þau reyna að verja
fyrir öðrum dýrategundum. — Rottan fer í ferðalög ef sultur steðjar
að, en virðist samt að jafnaði furðu staðbundin. Vestur í borginni
Baltinrore voru merktar 362 rottur og síðan sleppt. Fundust 119
þeirra í borginni aftur, flestar fljótlega. Náðust 73% aðeins 12
nretra frá heimkynninu. Svipaður varð árangur rottumerkinga á