Náttúrufræðingurinn - 2006, Blaðsíða 7
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
3. mynd. Á Heklutindi 11. sept. 1994. - The summit of Hekla Sept. llth 1994. Ljósm./Photo: ÁH.
1503 m y.s.6 Landmælingar íslands
mældu svo Heklutind á árunum
1955-56 þegar nýtt þríhyrninga-
kerfi, sem kennt er við Hjörsey, var
tekið í notkun.7 Mælingin, sem vafa-
laust er fyrsta flokks, sýndi lægri
tölu en Steinþór hafði mælt, sem við
mátti búast enda eðlilegt að gera ráð
fyrir því að efstu gígar hafi sigið og
veðrast frá goslokum. Hæðin reynd-
ist 1491 m og sú tala er birt á kortum
Landmælinganna fram til 1990.
Ljóst má vera að töluverðar hæðar-
breytingar hafa orðið á fjallinu á síð-
ustu áratugum vegna hinna tíðu
gosa. Einkum þótti mönnum sem
Hekla hefði hækkað í gosinu 1980.
Þá töldu margir að hún væri komin
yfir 1500 m en áreiðanleg mæling
var ekki gerð.
ÞÁTTUR BANDARÍKJAHERS
En hvernig stendur þá á hæðartöl-
unni 1450 á nýjustu kortum? Eftir
að hafa rakið mig frá einni kortaút-
gáfu til annarrar þykist ég sjá
hvernig í málinu liggur. Kortadeild
Bandaríkjahers (Defence Mapping
Agency) og Landmælingar íslands
gáfu út kortblaðið Vatnafjöll
1:50.000 árið 1990 í DMA-kortaröð-
inni svokölluðu. Hekla er á kort-
blaðinu og talan 1450 stendur við
hátindinn. Hæðin virðist vera feng-
in af fáséðu Islandskorti sem banda-
ríski herinn gaf út 1969 (Joint Oper-
ations Graphic (Ground), series
1501) þar sem þessi tala birtist í
fyrsta sinn. Þetta kort er byggt á
kortum sem sami her lét gera af öllu
landinu á árunum í kringum 1950,
svonefndum AMS-kortum, í mæli-
kvarða 1:50.000. Á Heklukortinu í
þeirri útgáfu er fjallið sýnt um það
bil 1450 m hátt samkvæmt hæðar-
línum en engin hæðartala er skráð.
Hins vegar er þess getið að kortið sé
byggt á loftmyndum sem teknar
voru að haustlagi 1945 og 1946. Þar
með virðist skýringin komin. Hæð
Heklu í íslandsatlasnum og fleiri
nýlegum kortum er fengin af mynd-
um sem teknar voru af Bandaríkja-
her fyrir eldsumbrotin 1947-48.
Hekla hefur gosið fimm sinnum síð-
an myndirnar voru teknar og há-
hryggur fjallsins hefur tekið breyt-
ingum í hvert sinn. Sá kafli korta-
sögunnar sem fjalla mun um sam-
skipti Landmælinga íslands og
kortadeildar Bandaríkjahers (Army
Map Service og síðar Defence
Mapping Agency) er enn óskráður
en ljóst er að hann verður ekki sá
glæsilegasti í þeirri sögu.
NÝJUSTU TÖLUR
Á nýjasta korti Landmælinganna af
Suðurlandi, en það er frá árinu 2005
og í mælikvarða 1:250.000, er Hekla
á ný sýnd 1491 m á hæð. Það er aug-
ljóst að þar á bæ hefur sú ákvörðun
verið tekin að taka aftur upp gömlu
mælitöluna frá 1955. Þetta verður
að teljast vafasöm ákvörðun þegar
nýrri og nákvæmari mæling er til
og hefur verið birt í víðlesnasta
landfræðiriti landsins, þ.e. Árbók
Ferðafélags íslands. í nýjustu prent-
un íslandsatlass Eddu - útgáfu
(2006) hefur hæðartölunni verið
breytt á sama hátt.
67