Náttúrufræðingurinn - 2000, Blaðsíða 23
Bjargdúfan
COLUMBA LIVIA ~
VILLTUR VARPFUGL
Á ISLANDI
PETUR GAUTUR KRISTJANSSON
Bjargdúfa (Columba liviaj er útbreidd
itin Evrópn, Norður-Afríku og Asíu,
e.t.v. allt austur til Kína. Kjörsvœði
bjargdúfunnar og afkomenda hennar,
skræpunnar og tömdu dúfunnar (hús-
dúfunnar), eru klettar og inannvirki;
hreiðurstceðið sylla eða hola, egg eru
tvö talsins, bœði kynin liggja á,
útungunartíminn er 17-18 dagar og
ungarnir eru orðnir fleygir eftir um
það bil 30 daga (Walters 1980a,
1980b).
jargdúfunnar er nánast að
engu getið í fuglafræðum
íslenskunt á þessari öld. Er þá
fyrst til að nefna sjálfan Bjama
Sæmundsson (1936) í „Fuglunum". Þar er
tegundarinnar ekki getið í lista yfir „Islensk
fuglanöfn" en aftur á móti er hún á lista yfir
„Nöfn á merkum útlendum fuglum, sem
nefndir eru í bókinni" Bjarni Sæmundsson
1936). Hér var kominn forsmekkurinn að því
sem síðar átti eftir að verða (Magnús
Björnsson 1939; Petersono.fi. 1962, 1964;
Arnþór Garðarsson 1982, Ævar Petersen
1998). Bjargdúfan hefur ekki fengið inni
meðal húsdýra íslenskra og heldur ekki
meðal villtra fugla. Hún virðist alls engan
stað hafa átt sér í íslenskri tilveru, hvað þá
fánu.
Upp úr 1970 kom hins vegar út „Stóra
fuglabók Fjölva“ eftir J. Hanzak nokkum,
staðfærð af Friðriki Sigurbjömssyni. Þar
kveður við nokkuð nýjan tón. I bókinni er
vakin athygli á því að dúfur lifi villtar í
sjávarklettum við V ík í Mýrdal (Hanzak 1971).
Þá er að geta nýlegrar bókar, „Fuglar í
náttúru íslands“ (Guðmundur P. Ólafsson
1987). Þar er að sjá að litli neistinn sem
Friðrik Sigurbjörnsson kveikli sé að verða
a.m.k. að týru. Þar eru dúfur teknar fyrir
undir varpfuglum en um Columba livia er
nánast ekkert sagt, en útbreiðslusvæði
dúfna er þó látið ná yfir vestasta hluta
landsins með athugasemdinni: „Dúfur við
Tjörnina í Reykjavík“ (1. mynd).
1 nýútkominni bók „Islenskir fuglar"
(Ævar Petersen 1998) er ekki fjallað um
húsdúfu/bjargdúfu frekar en í öðrum
yfirlitsritum.
Pétur Gautur Kristjánsson (f. 14. júlí 1934, d. 10.
dcseinber 1999) lauk stúdcntsprófi úr máladeild
Menntaskólans á Akureyri 1952 og cand.jur.-prófi
frá Háskóla Islands 1961. Starfsævi hans skiptist
milli kennslu og einbættisstarfa. Hann var fulltrúi hjá
sýslumanni á Siglufirði 1961-1966, fulltrúi bæjar-
fógeta í Vestmannaeyjum 1966-1969, kennari við
Gagnfræðaskóla Suðurnesja og víðar 1969-1985,
fulltrúi sýslumanns á Seyðisfirði 1986-1987 og á Sel-
tjarnarnesi 1987-1988. Eftir það sinnti hann lög-
fræðistörfum meðfram kennslu og var sjálfstætt
starfandi lögmaður til dauðadags. Pétur var gæddur
stálminni, aflaði sér fróðleiks á hinum fjölbreytileg-
ustu fræðasviðum og var ótrúlega víða vel heima,
m.a. í líffræði og skyldum greinum, svo sem
fuglafræði og fiskifræði. Hann öðlaðist lands-
frægð er hann vann hverja spurningakeppnina af
annarri í útvarpsþáttum á áttunda áratugnum.
Náttúrufræðingurinn 70 (1), bls. 21-26, 2000.
21