Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2000, Blaðsíða 70

Náttúrufræðingurinn - 2000, Blaðsíða 70
Fiðrildi á frímerkjum Fiðrildi prýða fjöldamörg erlend frímerki. Nú hefur íslandspóstur farið inn á __________ þessa braut í fyrsta sinn og valið tvær tegundir íslenskra fiðrilda sem myndefni á íslensk frímerki. Frímerkin tvö voru gefin út 9. október árið 2000. Verðgildi merkjanna er kr. 40 og kr. 50 og má því búast við að sjá þau á umslögum í nokkrum mæli. Um er að ræða tvær algengar tegundir fiðrilda hér á landi sem hönnuður merkjanna, Hany Hadaya, valdi í samráði við Erling Olafsson, skordýrafræðing á Náttúrufræðistofnun Islands. Myndirnar voru teiknaðar eftir eintökum í safni Náttúrufræðistofnunar. Á íslandi finnast ríflega 50 innlendar tegundir fiðrilda en auk þeirra berst íjöldi tegunda til landsins erlendis frá á hverju ári. Fiðrildin sem prýða frímerkin að þessu sinni voru skrautfeti og grasygla. Skrautfeti (Chloroclysta citrata) meðal algengustu fiðrildategunda á íslandi. Hann finnst þó aðeins á láglendi en á miðhá- lendinu lifir hann ekki. Fiðrildin fljúga í mest- um fjölda síðla sumars, einkum í ágúst, en lirfurnar vaxa upp fyrri hluta sumars. Þær nærast á ýmsum tegundum plantna en blá- berjalyng er í uppáhaldi hjá þeim. Tegundin heidur sig því einkum í mólendi og deiglendi þar sem bláberjalyng vex. Fá íslensk fiðrildi skarta faliegum litum. Skrautfeti er ein skraut- legasta tegundin en hann er þó afar breyti- legur. Sum fiðrildin eru fagurlega mynstruð, svört og hvít, en flest eru móleit á lit með sérstæðu mynstri sem einkennir tegundina. Grasygla (Cerapteryx graminis) gekk löngum undir heitinu grasfiðrildi og er e.t.v. með þekktari tegundum fiðrilda hér á landi. Það kemur þó ekki til af góðu, því að lirfa Nýju frímerkin með fyrstadags stimpli. Skrautfeti til vinstri, grasygla til hægri. grasyglu er hinn illræmdi grasmaðkur sem stundum veldur umtalsverðum skemmdum á túnum og haga. I annálum fyrri tíma má fínna skráðar heimildir um tegundina og skemmdir af hennar völdum. Eftir sem áður er hér um að ræða fiðrildi sem telja má til þeirra fallegri hérlendis. Tegundin er auðþekkt á sérstæðu mynstri ráka á framvængjum. Grasygia er nokkuð algeng í graslendi á láglendi um land allt en af henni eru þó töluverð áraskipti sem einnig geta komið fram staðbundið á land- inu. Hún flýgur um miðbik sumars, í mestum mæli í júlí. Lirfurnar vaxa upp á vorin og éta rætur grasa og neðsta hluta stöngla. Þær taka stundum svo hressilega lil matar síns að afleiðingarnar verða skaðvænlegar. Frekari upplýsingar um þessi fiðrildi og lleiri tegundir er m.a. að finna í Fjölriti Náttúrufræðistofnunar nr. 32 sem gefið var útárið 1997. er 68
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.