Náttúrufræðingurinn - 2000, Blaðsíða 45
2. mynd. Breiðnefur, Ornithorhynchus anatinus. (Nowak 1990.)
18 metra djúp, sem
kvendýrin ein grafa og
verpa þar og annast
egg og unga. Op
grenjanna eru á þurru
nema í mestu flóðum
og þaðan hallar göng-
unum upp á við.
Breiðnefir synda og
kafa fimlega og sækja
alla næringu í vatnið.
Þótt dýrin sjái og heyri
vel nýtast þeirn þessi
skilningarvit lítt eða
ekki í kafi, því þar eru
augu og eyru lokuð.
Breiðnefur á veiðum kannar botninn með
næmum goggnum og grípur með honum það
sem ætilegt er - krabbadýr, skordýralirfur,
snigla, froskseiði, orma og síli.
Fengitími er frá ágúst fram í október. Dýrin
makast í vatni og hálfum mánuði síðar
verpur kvendýrið tveimur eggjum, sjaldnar
einu eða þremur, í hreiður í greni sínu og
liggur svo á í eina tíu daga. Þá klekjast
ungarnir, um þuntlungs langir og hárlausir.
Fjögurra ntánaða fara ungarnir úr greninu,
fullhærðir og rúmlega 30 cm langir.
Breiðnefir voru áður veiddir vegna felds-
ins. Nú eru þeir alfriðaðir eins og önnur nef-
dýr og algengir víða á útbreiðslusvæðinu.
framan á því, sem dýrin renna langri tungu út
úr. Eins og á breiðnef eru sporar á afturfótum
karlanna, en bæði sporamir og eiturkirtlamir
sem tengjast þeim eru i'ýrir og eitrið dauft.
Astralíumjónefur eða maurígull, Tachy-
glossus aculeatus (3. tnynd), lifir víða á
meginlandi Ástralíu og á Tasmaníu og
hlutum Nýju-Gíneu. Þetta er gildvaxin
skepna, urn 35-50 cm löng nteð stutta rófu,
með langa, hvassa brodda og fremur stutt,
beint trýni með þröngu munnopi fremst. Ut
um það rekur mjónefurinn langa og slímuga
tungu og veiðir með henni maura og termíta,
líkt og mauræta.
Á fengitíma, í júlí eða ágúst, eðla mjó-
nefirnir sig kvið við kvið. Skömmu síðar
M/ónefir
T vær tegundir mjónefja
lifa í Eyjaálfu. Mörg af
hárunum á bakinu eru
ummynduð í brodda,
líkt og á broddgelti. Á
fótunum eru öflugar
klær, og dýrin geta
grafið sig í jörð á
skammri stundu ef á
þau er ráðist. Auk þess
geta mjónefir hniprað
sig saman og skýlt sér
undir broddabrynjunni
eins og broddgeltir.
Trýnið er mjótt, um-
lukið hyrnisslíðri, og
munnurinn þröngt op
3. mynd. Ástralíumjónefur eða maurígull, Tachyglossus aculeatus.
(Nowak 1990.)
43