Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1980, Side 22

Náttúrufræðingurinn - 1980, Side 22
HREÐAVATNS- OG TINDAMISLÆGIN Þegar hraunlag leggst lárétt ofan á lag eða lög sem hafa snarast myndast mislægi (1. mynd d). í Borgarfirði er mislægi sem nefnt hefur verið Hreða- vatnsmislægið. Þvi var fyrst lýst af Hauki Jóhannessyni (1975), en síðan hefur það fundist víðar (Hjalti Franzson 1978, Kristín Vala Ragnarsdóttir 1979). Mislægið hefur nú verið rakið frá Hafnarfjalli upp Borgarfjörð með Hvítá og Norðurá allt að Hreðavatni. Þaðan liggur mislægið vestur í Langavatnsdal og að Hítarvatni og þaðan út Fagra- skógarfjall og Kolbeinsstaðafjall (2. mynd). Best sést mislægið í ofanverðum Borgarfirði og í Langavatnsdal. I Norðurárdal i Borgarfirði eru jarðlögin lárétt í andhverfuásnum en hallinn eykst stöðugt er frá honum dregur, uns komið er að Hreðavatnssetlögunum. Þar er hallinn orðinn 10—30° SA. Ofan setlaganna er hallinn aftur á móti aðeins 5—7° SA, þ. e. jarðlögin ofan set- laganna leggjast mislægt á þau sem undir eru. Jarðlögin sem eru neðan set- laganna hafa því snarast áður en þau runnu sem ofan á eru. í gili Brekkuár í Norðurárdal er afbragðs snið í gegnum mislægið (3. mynd). Undir Hreða- vatnssetlögunum þar eru basalt hraun- lög sem hallar 10—15° SA. Áður en setlögin settust til hafa roföflin verið af- kastamikil og náð að mynda rofsléttu líkt því sem er á Mýrunum í dag. Klettaásar hafa stefnt NA-SV og mýra- sund verið á milli þeirra. Þessi gömlu jarðlög eru allmikið ummynduð og miklum mun meira en þau lög sem ofan við setlögin eru. Af þessu verður að draga þá ályktun, að roföflin hafi skafið nokkur hundruð metra ofan af upphaf- legum jarðlagsstafla áður en setlögin mynduðust. Ofan á þessi snöruðu jarð- lög leggjast svo Hreðavatnssetlögin. Neðst, í slökkunum milli ásanna sem fyrir voru (sbr. 3. mynd), er silt- og sandsteinn með völum og hnullungum, en ofar tekur við silt- og sandsteinn með plöntuleifum sem bera merki um mun hlýrra loftslag en nú er (Schwarz- bach 1956). Efst er móbergsset. I því eru einnig plöntuleifar. Það er að uppruna vikur og aska en hefur flust með vatni 3. mynd. Rissmynd af Hreðavatnsmislæg- inu við Brekkuá í Norð- urárdal Borgarfirði. — Schemalic section across the Hredavatn unconformity al Brekkuá in Norburárdalur in Borgarfjördur. SKÝRINGAR / LECEND: ps//'._/q 6.5-7.0 m. ára gamalt basalthraunlag. Bólstrakennt neðst; miðjan IUÍvjJ reglulega stuðluð og stárstuðluð; efst kubbabergstuðlun. 6. 5 —7.0 m.y. oid bosolt lava f/ow. Bottom: pillowlike bodies; centre part: regu/ar co/umnar jointing; top: two-tiered coiumnor jointing. [y * <“| Móberg með steingervingum. k < * Xl Hyaiociastite (redeposited, inciuding plontfossi/s). j Silt-og sandsteinn með steingervingum Fossiiiferous siit - ond sondstone. Silt- og sandsteinn með völum og hnullungum. 7 á;- v;J Siit - and sandstone with bouiders 12-13 m. a'ra gbmul basalthraunlog. /2-/3 m.y. oid boso/t iava fiows. 16

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.