Náttúrufræðingurinn - 1980, Síða 33
t. v. að Reykjanes-Langjökulsrekbeltið
kulnar út og að rek eigi sér aðeins stað í
Austurrekbeltinu.
HVAÐ VELDUR
REKBELT AFLUTNIN GI ?
Reykjaneshryggurinn virðist hafa
verið virkur í 60 milljón ár og
Kolbeinseyjarhryggurinn síðustu 18
milljón árin, á meðan rekbeltin hafa
flust tvisvar til á fslandi. Talið hefur
verið að undir íslandi sé möttulstrókur
eða heitur reitur (sbr. Vogt 1974).
Talið er að möttulstrókur og plötu-
mót, eins og úthafshryggirnir, geti
hreyfst óháð hvort öðru (Wilson 1973).
Kristján Sæmundsson (1974) varpaði
fram þeirri hugmynd að plötuskilin
væru á hreyfingu vestur yfir kyrrstæðan
möttulstrók undir fslandi. Með hliðsjón
af þessari hugmynd er auðvelt að út-
skýra rekbeltaflutningana á íslandi.
Rekbeltin eru plötumótin á íslandi og
rekur þau vestur yfir möttulstrókinn.
Uppstreymið í möttulstróknum er öfl-
ugra en uppstreymið sem fylgir rek-
hryggjunum og hefur strókurinn því
tilhneigingu til að stjórna legu plötu-
mótanna allra næst sér. Þegar suður
hluti Snæfellsnesrekbelúsins var virkur
(fyrir 6.5—16 m. ára) var möttul-
strókurinn nálægt plötumótunum.
Síðan heldur rekið áfram og áður en
varir er strókurinn austan við plötu-
mótin. Þegar fjarlægðin er orðin hæfileg
Joá brýtur hann upp plötuna og myndar
nýjan rekbeltisstúf (Reykjanes-Lang-
jökulsrekbeltið) en hinn fyrri deyr út.
Sama sagan endurtekur sig aftur þegar
strókurinn er kominn nægilega langt
austur frá Reykjanes-Langjökulsrek-
beltinu og nú myndar hann Austurrek-
beltið. Einhverra hluta vegna haldast
þessir rekbeltaflutningar ekki alveg í
hendur á Norður- og Suðurlandi, e. t. v.
vegna þess að suður hlutinn liggur
ávallt vestar en norður hlutinn og er því
fyrr kominn í ójafnvægi við möttul-
strókinn.
Hægt er að reikna út með hvaða
hraða plötumótin rekur yfir möttul-
strókinn og reynist hann vera um 0.75
cm á ári að meðaltali síðustu 16 m. árin.
ÞAKKÍR
Jón Eiríksson og Páll Einarsson lásu
yfir handrit og lagfærðu margt sem
betur mátti fara, og er það þakkað hér.
HEIMILDIR
Albertsson, Kristinn. 1976. K/Ar ages of Plio-
cene-Pleistocene glaciations in Iceland
with special reference to the Tjörnes
sequence, northern Iceland. Ph.D.
ritgerð, Cambridge University, 268 bls.
Aronson, J. L. & Kristján Sœmundsson. 1975.
Relatively old basalts from structurally
high areas in central Iceland. Earth
Planet. Sci. Lett. 28: 83—97.
Björnsson, Axel, Kristján Sœmundsson, Páll
Einarsson, Eysteinn Tryggvason & Karl
Grönvold. 1977. Current rifting episode in
north Iceland. Nature 266: 318—323.
Einarsson, Páll & Sveinbjöm Björnsson. 1980.
Earthquakes in Iceland. Jökull, í
prentun.
Einarsson, Páll, F. W. Klein & Sveinbjörn
Björnsson. 1977. The Borgarfjördur
earthquakes in West Iceland 1974. Bull.
Seismol. Soc. Am. 67: 187 — 208.
Einarsson, Trausti. 1957. Magneto-Geological
mapping in Iceland with the use of a
compass. Phil.Mag. Suppl. 6: 232—239.
Einarsson, Þorleifur. 1967. The extent of the
Tertiary basalt formation and the struc-
ture of Iceland. I: Sveinbjörn Björnsson
27