Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1980, Síða 44

Náttúrufræðingurinn - 1980, Síða 44
íbúar 1946. Aðalaukning íbúa varð upp úr 1960, og eru nú um 1450 íbúar í Hveragerði að meðtöldum vistmönnum Heilsuhælisins. Iðnaður hófst í Hvera- gerði 1930, þegar Mjólkurbú Ölfusinga var stofnað, en það starfaði til 1938. Árið 1939 var stofnuð þangmjölsverk- smiðja, sem var starfrækt í 2—3 ár. Fyrsta garðyrkjustöðin var stofnuð 1930, og voru þær orðnar þrjár um 1940. Nú er garðyrkja aðalatvinnuvegur í Hveragerði og eru um 20 stöðvar starfræktar. Ullarþvottur hefur verið í Hveragerði frá 1939, og var Ullar- þvottarstöð SlS reist 1963. Notar hún um 50 kg af þvottasóda á dag og 20 kg af súlfúrsápu sem fer í ána (Þorkell Guð- brandsson munnl. uppl.). Ein fiskeldis- stöð, Tungulax, er starfrækt. Þar eru nú um 100 þúsund seiði á fyrsta ári, og eru notuð um 15 — 20 kg af fóðri á dag í stöðinni (uppl. frá Tungulaxi h.f.). í Varmá eru áll, urriði og lax (Salmo salar). AÐFERÐIR Sýnataka fór fram tvisvar í hvorri á, dagana 2. 2. 1977 (6 stöðvar) og 27. 10. 1978 (8 stöðvar) í Varmá í Mosfellssveit og 4. 10. 1977 (6 stöðvar) og 9. 11. 1979 (7 stöðvar) í Varmá í Ölfusi. Á hverri stöð voru gerðar eftirtaldar athuganir: breidd árinnar mæld, dýpi mælt með 0,5 m millibili þvert yfir árnar, þar sem þær voru mjórri en 10 m, en á 1 m millibili væri breidd ánna meiri en 10 m, hraði árvatnsins mældur á sömu stöðum og dýpi var mælt, og hitastig mælt. Vatnssýni voru tekin í seinni athugunum í báðum ánum, og var sýrustig og rafleiðni vatnsins mæld. Teknir voru 5 steinar á hverri stöð, mesta lengd þeirra mæld og mesta breidd hornrétt á lengdina. I seinni athuguninni í Varmá í Ölfusi var ofan- varp steinanna mælt, til að finna flatar- mál þeirra, í stað mestu lengdar og breiddar. Þegar hverjum steini var lyft upp úr ánni var haldið neti (0,25 mm möskvastærð) fyrir neðan steininn, þannig að þau dýr sem losnuðu af steininum festust í netinu. Hver steinn var þveginn með uppþvottabursta í fötu með vatni og gengið úr skugga um að öll dýr hefðu farið af steininum. Vatninu var hellt í gegnum netið, og dýrin síðan tekin úr því og geymd í 70% ísóprópan- óli. Dýrin voru greind til tegunda eða tegundahópa og einstaklingar hverrar tegundar eða hóps taldir undir víðsjá. Tafla I. Nokkur mengunarefnanna sem berast í Varmá í Mosfellssveit og Varmá í Ölfusi, þegar meðalrennsli er í ánum. — Sorne of the þolluting substances in the rivers Varmá in Mosfellssveit and Varmá in Ölfus at average discharge. Varmá í Mosfellssveit Varmá í i ölfusi meðalrennsli 0,5 m3/sek meðalrennsli 2,2 m3/sek kg/dag mg/1 kg/dag mg/1 Skólp (130 g þurrefni/íbúa/dag*) Sewage (130 g dry weighl /inhabitant /day) 91 2,1 188 1,0 Þvottasódi, NaHC03 290 6,7 50 0,3 Súlfúrsápa, Sulfuric soap 46 1,0 20 0,1 * Samkvæmt staðli frá danska umhverfisráðuneytinu 1979. 38
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.