Náttúrufræðingurinn - 1980, Side 52
Karl Skírnisson:
Fæðuval minks
við Sogið
INNGANGUR
Grein þessi fjallar um athuganir á
fæðuvali minks (Mustela vison Schreber)
við Sog í Árnessýslu 10 fyrstu mánuði
ársins 1978. Á sama tíma var fæðuval
minks við sjávarsíðuna vestan Grinda-
víkur athugað (Karl Skírnisson 1979a).
Athuganir þessar voru hluti af rann-
sóknarverkefni höfundar við liffræði-
skor Háskóla Islands.
Markmið þessara athugana var að
afla staðgóðrar vitneskju um fæðu
minks bæði við sjó og inn til landsins.
Hér á landi hefur ítarlegar rannsóknir á
þessu sviði skort, en erlendis hafa
nokkrir aðilar kannað fæðuval minks (t.
d. Hamilton 1959, Gerell 1967, 1968,
Erlinge 1969, Akande 1972, Day & Linn
1972).
Rúmlega 40 ár eru liðin frá því að
minkar fóru að lifa villtir við Sogið
(Hólmjárn J. Hólmjárn 1948).
Margir hafa orðið til að liðsinna höf-
undi við þessar rannsóknir. Við söfnun
og úrvinnslu þeirra gagna, sem hér er
fjallað um, veittu Árni Einarsson, Ástrós
Arnardóttir, Erlendur Jónsson, Gísli M.
Gíslason, Jón Kristjánsson, Jón B.
Sigurðsson, Kristinn H. Skarphéðins-
son, Magnús Magnússon, Ólafur K.
Náttúrufræðingurinn, 50 (1), 1980
Nielsen, Oliver Prýs-Jones, Sigurgeir
Skirnisson, Skarphéðinn Þórisson og
Ævar Petersen aðstoð sína og færi ég
þeim bestu þakkir fyrir. Sérstaklega
þakka ég dr. Arnþóri Garðarssyni, um-
sjónarmanni verkefnisins, liðsinni og las
hann handrit.
AÐFERÐIR
Athuganir fóru fram við Sogið í
Árnessýslu á timabilinu janúar — októ-
ber 1978, en þá var safnað minkasaur
sem úr voru greindar fæðuleifar.
Athuganasvæðið (1. mynd) var eystri
bakki Sogsins, frá Búrfellslæk niður að
Álftavatni, ásamt vatnsbakkanum við
ofanvert Álftavatn, alls um 4,5 km löng
strandlengja. Skógivaxið hraun nær
víðast livar niður að vatnsborði en á
mótum hraunsins og vatnsins er víða
nokkuð sléttur en mjór bakki. Kinda-
gata er á vatnsbakkanum, sem minkar
ferðast gjarnan eftir. Vatnsrennsli er
tiltölulega stöðugt í Soginu allan ársins
hring (Sigurjón Rist, munnlegar uppl.)
og víðast hvar nær gróður niður að
vatnsborði (2. mynd). Greni þau sem
fundust (sbr. 1. mynd) voru í hraun-
jaðrinum, í stórgrýtisurð þar sem jarð-
46