Náttúrufræðingurinn - 1984, Page 59
Helgi Hallgrímsson:
Landnám lífs í Skjálftavötnum
í Kelduhverfi*
INNGANGUR
Þegar ísa leysti í Kelduhverfi vorið
1976 kom í ljós að ný stöðuvötn höfðu
myndast í svonefndum Stórárfarvegi,
framan við Keldunestorfuna, nyrst á
Ássandi. Hafa þau hlotið nafnið
Skjálftavötn. Um er að ræða gamlan
farveg Jökulsár (eða farvegi), og rann
mestur hluti árinnar í honum fram yfir
síðustu aldamót (1910), er áin gróf sér
núverandi farveg, sem kallast Bakka-
hlaup (sjá myndir 1—2). Ljóst var að
sigstallur hafði myndast þvert yfir
farvegina í stefnu NNA frá Keldunes-
koti og safnaðist vatnið í sigdældina
austan hans. Aðalvötnin eru tvö, að-
skilin af tanga og mjóu sandhólarifi,
sem þó vatnar stundum yfir hér og
þar, svo líta má á þetta sem eitt vatn.
Er það nærri ferkantað, rúmir 2 km frá
norðri til suðurs en tæpir tveir á hina
hliðina. Dýpi mun víðast vera um 1 m
og hvergi meira en 1.5 m. Til vatnsins
rennur lindarvatn, sem kemur víða
undan hraunröndinni fyrir sunnan og
vestan, sumpart beint í vatnið, en sum-
part um lænur allt sunnan frá bænum
Lyngási (6. mynd). Afrennsli hefur
það (úr syðra vatninu) í Litlá, skammt
fyrir norðan Keldunes. Einhver hluti
* Grein þessi er að stofni til erindi sem
flutt var á ráðstefnu líffræðinga í
Reykjavík, í desember 1979.
lindavatnsins sem í vötnin rennur er
volgur, en langmest af vatninu er kalt
(um 4-5° C).
Þar sem vötnin liggja nú var áður
sandlendi, misjafnlega gróið, og var
meginhluti þess innan sandgræðslu-
girðingar, þar sem sáð hafði verið mel-
gresi og borið á tilbúinn áburður af og
til (1,—5. mynd). Ekki er mér kunnugt
um nein vötn eða tjarnir á þessu svæði
fyrir umbreytinguna, en þó mun vatn
hafa staðið þarna uppi á stöku stað í
leysingum á vorin (1. mynd). Einnig
hefur Jökulsá átt það til að senda kvísl
í farvegina í krapastíflum á vetrum.
Lindir við hraunjaðarinn munu ekki
hafa verið áberandi fyrir breytinguna,
en fyrr á öldum voru tjarnir á þessu
svæði (Keldunes- og Hólstjarnir).
Ekki hafa Skjálftavötnin fengið að
vera alveg ótrufluð með sínu tæra
lindarvatni, því Jökulsá hefur a. m. k.
einu sinni (líklega oftar), náð að vaxa
svo síðsumars að flætt hefur úr henni í
vötnin svo að þau hafa orðið jökullit-
uð. Mun það hafa truflað mjög
landnám og framgengi lífsins í þeim.
Síðan vötnin mynduðust vorið 1976
hafa þau fremur stækkað heldur en
hitt, og vatnsmagn þeirra aukist. Mun
nú tíðara að flæði yfir sandrifið, sem
skilur vötnin tvö. Næstu stöðuvötn eru
Víkingavatn í um 7 km fjarlægð, Arna-
neslón í svipaðri fjarlægð og Ástjörn í
um 9 km fjarlægð.
Náttúrufræöingurinn 53 (3-4), bls. 149-159, 1984
149