Náttúrufræðingurinn - 1986, Blaðsíða 24
VIOSTAÐA VATNS i LÓNUM OG AURSTÖÐVUN
© FÍNN AURBURÐUR (< 0,020mm)
® GRÓFUR AURBURÐUR (> 0,020mm)
9. mynd. Samband milli viðstöðu vatns í lónum og aurstöðvunar. Línuritin ættu að gilda
nokkuð almennt fyrir ár hér á landi með svipaðan aurburð og Þjórsá, en það eru flestar ár
af móbergssvæðum og blönduðum móbergs- og blágrýtissvæðum. (Mynd frá Hauki
Tómassyni 1982). - The correlation between retention time of water and sedimentation of
glacial silt in reservoirs in the Pjórsá river system. The correlation is thought to hold for
most glacial silted rivers in lceland.
vatnsbolnum. Þessi dökka mynd á
fyllilega við í hreinræktuðum jökullón-
um sem veruleg miðlun yrði í. I veitu-
og inntakslónum, þar sem miðlun yrði
óveruleg, gæti frumframleiðsla átt sér
stað á mjóum kransi næst vatnsborði.
Á móti kemur, að viðstaða vatns yrði
stutt og þar með verri skilyrði fyrir
svif, en í stórum miðlunarlónum, þar
sem viðstaða vatnsins skiptir hundruð-
um daga.
í stórum miðlunarlónum með inn-
rennsli sem er hæfileg blanda af berg-
og jökulvatni, eins og t.d. Þórisvatni,
er nægilega lítið af jökulaur til að veru-
leg frumframleiðsla geti farið fram.
Það sem kom meira á óvart var að
ljósið virðist ekki vera takmarkandi
fyrir plöntusvifið í Þórisvatni heldur
framboð á nitursamböndum (Hákon
Aðalsteinsson 1981a). Hinsvegar er
vatnsborðssveiflan það mikil að
strandsvæðin eru ónýt sem búsvæði
dýra, og þar fyrir neðan er myrkvað.
Einnig virðist hafa tekið fyrir hrygn-
ingu urriða í vatninu vegna vatns-
borðsbreytinga. Eftir miðlun Þóris-
vatns varð urriðinn að leita sér fæðu
meðal dýrasvifsins, og hefur það trú-
lega hrundið af stað breytingum sem
orðið hafa á samsetningu þess (Hákon
Aðalsteinsson 1981a).
ÁHRIF VIRKJANA Á ÁR
Miðlunarlónin eru til þess gerð að
122